Höndlunina' úr Hólmi bar
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Höndlunina' úr Hólmi bartil Hafnarstrætis flyturaf er nú sem áður varár um kring þar situr.
Heimildir og samhengi
Verslunarskip lögðust við anker undan Hólminum, sem var eyja fram undan Ánanaustum, en nú sker, er flýtur yfir á stórstraumsflóði. Grandi liggur úr henni til lands og er enn fært um hann á stærstu fjöru. Vegna ágangs sjávar hröktust kaupmenn til Örfiriseyjar snemma á 17. öld að talið er, en nafnið Hólmur hélst á verslunarstaðnum. Á þeim árum höfðu kaupmenn eftirliggjara til að gæta birgða og húsa um vetur. Þótti þeim tryggara að hafa vörur og hús á eyjum.
Þegar stjórnin er tekin við versluninni (1774) hlýðir hún ekki þeirri fyrirskipun alþingis, allt frá 1490 (Piningsdómur), að útlendingum sé óheimil veturseta og mannahald ár um kring og fer a.m.k. sums staðar að gera út og versla allt árið.
Við það flyst verslunin úr Örfirisey til Hafnarstrætis.
Stjórnin tekur þarna Adam Smith á orðinu, en hann gaf út bók sína, Um auðlegð þjóðanna 1776.
Leið aðeins rúmur áratugur þar til rýmkað var um verslunarhöftin, sem á þessum tíma voru um alla evrópu næstu 100 árin.
Á Ísafirði og Eyrarbakka höfðu kaupmenn þjófstartað, þ.e., byggt verslunar-1755 og íbúðarhús 1765, en Gísli Konráðsson ritar við árið 1776 í Sögu Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 49:
,,Nær 20 manns lágu þá eftir í Höfða, þótti það fáheyrt. Það var Diðrik Hölter og kona hans með þremur börnum, tveir undirkaupmenn, beykir kvongaður með tveim börnum, Pens kaupmaður gamli, timburmaður að smíða kaupmannshús, búðarloka, tvær þernur íslenskar, tveir íslenskir timburmenn.
Hafði kaupmaður síst að selja það er menn girntust, svo sem tóbak ...tóbakssala og brennivíns var sem fyrri íslenskra á milli. ...Tóbak var þá selt í Höfða 4 skildingum dýrara hvert pund en verðlagsskráin bauð. ...1779 tóbakspundið enn hækkað um 4 skildinga".
Skýring: Kaupmenn urðu að fylgja skráðu verði.
Fjáðir Íslendingar - allt frá Bauka-Jóni (1643-1690) til Þorleifs ríka á Háeyri (1799-1882) og Þorvalds ríka á Þorvaldseyri (1833-1922) - keyptu upp birgðirnar og seldu síðan háu verði.
Sjá og 1658: hundraðskaup.
Húsið á myndinni er Hafnarstræti 1, Rvk. Til Hafnarstrætis, þá nefnd Strandgata, fluttust verslanirnar í fyrstu. Gatan fylgdi sjávarkambinum og af því stafar bugðan sem enn er á henni. Við vestari enda götunnar voru fálkarnir hýstir síðustu dagana áður en þeir voru fluttir til skips. Fálkarnir á þaki hússins á myndinni eiga að minna á þann tíma.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)