Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1779
1779
1779

Grallarinn þrykktur í síðasta sinn

Hljóðbrot0:00

Lag Augun mín og augun þín

GGrallarinn þrykktur í síðasta sinnsöguna ekki meirnæsta bókin, Magnús minn,merglaus þunnur leir.

Glúmur Gylfason · 1779

Heimildir og samhengi

Grallarinn útgefinn í 19. og síðasta sinn nema hvað Lithoprent ljósritaði 1. útgáfu Grallarans og gaf út 1946.

1594 gaf Guðbrandur biskup Þorláksson á Hólum út ,,Eina almennilega Messubók", sem fékk nafn af messuliðnum graduale, sem er víxlsöngur einsöngvara og safnaðar eða kórs úr Davíðssálmum á milli lexíu og pistils í messunni, liður sem oftast er sleppt nú orðið í lútherskti messu á Íslandi.
1589 hafði Guðbrandur látið prenta Sálmabók. Báðar bækurnar höfðu nótur með textunum.

Grallarinn kom síðan að meðaltali út ellefta hvert ár til og með 1779. Magnús Stephensen réði þá fyrir eina prentverki Íslands og stöðvaði frekari útgáfu og hugði á það sama með Vídalínspostillu, en þá snerust íslenskir Hafnarstúdentar til ,,uppreisnar" og það með styrk frá stjórninni, og komu Postillunni út 1827-1828. Sjá 1718.

Sálmabókinni 1801 dóu þeir frá biskuparnir Árni Þórarinsson (d. 1787) og Hannes Finnsson (d. 1796), og hafði Magnús Stephensen eftir það umsjón alla með útgáfunni.
Prentuð var hún í Leirárgörðum og dró tvírætt nafn þar af. Sjá 1801.

Mynd af Árna Hólabiskupi Þórarinssyni:HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)

Der Spiegel Geschichte 1, 2021, bls. á bls. 108, skrifar Felix Bohr, að kristnin hafi ratað í kreppu á upplýsingartímanum. Þá var hlutverk Biblíunnar að margra áliti helst það, að vísa mönnum veg til siðlegs og skynsamlegs lífernis.

Viðbætur við sálmabókina frá 1801 komu út 1819 og 1861, en sálmabók kom út 1871 í tíð Péturs biskups Péturssonar og sætti gagnrýni þar til Sálmabókin1886leysti hana af hólmi, sjá þar. Sjá og 1833.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1779

  • Höndlunina' úr Hólmi bar
← 1779Höndlunina' úr Hólmi bar1780 →Landsins nýja lækni nú