Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1781
1781
1781

Úr Skálholti Bjarni til Flóa fer

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumalandi

ÚÚr Skálholti Bjarni til Flóa ferfyrirbænalaustFinnur vill ekki hafa' h'ann hérá Hannes setur traustGaulverjum fékk greindan prestgreiddust málin vöndskuen bændur ku því kvíða mestað klerkur messi á dönsku.

Glúmur Gylfason · 1781

Heimildir og samhengi

+ Jón Teitsson f. 1716, Hólabiskup í eitt ár, áður síðast Gaulverjabæjarprestur, tengdasonur Finns Jónssonar Skálholtsbiskups. (1748, 1780).

Skálholtsrektor, Bjarni Jónsson (1725-1798), fékk þá Gaulverjabæ, en rektor varð Páll (1733-1816), áður konrektor, Jakobsson, Búðum, Eiríkssonar. (1725, 1729, 1756).
Bjarni má hafa farið fyrirbænalaust frá Skálholti, en samkomulag þeirra Finns biskups hefði getað verið betra. Hefur Finnur þá slegið tvær flugur í einu höggi, losnað við rektor og dóttirin orðið biskupsfrú.

Bjarna þessa, Skálholtsrektors, sem ættaður var frá Sandlæk í Gnúpverjahreppi og Svarfhóli við Laugardælur, er minnst fyrir að vera tveimur öldum á undan sinni samtíð - Landsbankastjórunum og varaformanni Samfylkingarinnar 2007 - með því að gera þá tillögu til Landsnefndarinnar síðari að leggja af íslensku. Skyldi þá koma danska í hennar stað en ekki enska eins og Samfylkingin og bankastjórarnir ætluðu 2007.

Bjarni sagður góður kennari og vinsælli með piltum en biskup, og tóku hvorir tveggja upp á því að vanrækja morgun- og kvöldtíðir, sem var brot á skólareglum.
Kenndi Finnur Bjarna rektor um djörfung pilta.
Biskup hafði kallað yfir sig reiði þeirra með því að banna herranótt, afnema fatapeninga, og finna að ljósakveikingum á jólanótt, sem þá mögnuðust.

Til þessara erfiðleika er það rakið að Finnur kallaði Hannes, son sinn, til aðstoðarbiskups 1777, en hann náði betur að halda aga á skólapiltum.
Tilvísun: Ísl. æviskrár, Öldin 18.

Svarfhóll var eitt af mörgum kotum sem stórbýlið Laugardælur raðaði í kringum sig til að verja sitt tún fyrir ágangi.
Þar sem kotið stóð er nú golfvöllur og von á nýrri Ölfusárbrú.
Vefurgosgolf.is (opnast í nýjum flipa)

Svarfhólsvöllur verður nágranni nýs Suðurlandsvegar:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Af bloggi Sæmundar Bjarnasonar 25. sept. 2007: Vefursaemi7.blog.is (opnast í nýjum flipa)
,,Mér finnst virðingarvert hjá Sigurjóni Landsbankastjóra að segja að til greina komi að enska verði ríkjandi innan bankans. Tillögur Ágústs Ólafs Ágústssonar varaformanns Samfylkingarinnar um að enskan verði gerð jafnrétthá íslenskunni í stjórnsýslu hérlendis finnst mér hinsvegar mjög varhugaverð".
Vefurpallvil.blog.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1780Landsins nýja lækni nú1782 →Ís fyrir sunnan Eyrarbakka