Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1782
1782
1782

Ís fyrir sunnan Eyrarbakka

Hljóðbrot0:00

Lag Hver veit, hve nærri er ævi endi - SSB 81b

ÍÍs fyrir sunnan Eyrarbakkaað austan kom um sumarmál.Sýslumannsekkju, Soffíu, þakkaað sáir næpum og ræktar kál.Úr lögum numið bann og bálbitið höfum úr þeirri nál.

Glúmur Gylfason · 1782

Heimildir og samhengi

Djáknaannáll, VI, 235: ,,Þrisvar kom hann (ísinn) um sumarið að Eyrarbakka, svo á Michaelismessu varð þar ei róið fyrir honum, fór hann þaðan með vetri".
Annálar V, 104: ,,Það má teljast merkilegt, að danskir duggarar þóttust hafa merkt til íss 15 mílum fyrir sunnan Ísland hvar við vöruskipin hindruðust að uppsigla norðurhafnirnar".

Soffía Amalía Ísfjörð (1747 - 1803), búsett á Eskifirði, sæmd fjórum spesíum sem verðlaun fyrir garðyrkju.
Stjórnin vill reyna að kenna Íslendingum að borða grænmeti. Það tók tíma – sbr. 1758.

Vinna kvenna á Íslandi í 1100 ár, bls. 335 segir að 1785 hafi átt að senda yfir 80 standrokka til Íslands. Tveir þeirra sendir til Reyðarfjarðar og fékk fyrrnefnd Soffía annan enda mjög dugleg við spunann. Eftir þetta hafi verið farið að smíða rokka fyrir austan. Heimild: Einar Bragi Sigurðsson, Eskja 2, 223.

Bannfæring numin úr lögum - hafði verið beitt a.m.k. einu sinni eftir siðaskipti.
Síðast maður dæmdur á bál 1690, en dómnum var ekki fullnægt. (1683, 1685).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1782

  • Svo var orðið aldarfar
← 1781Úr Skálholti Bjarni til Flóa fer1782 →Svo var orðið aldarfar