Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1782
1782
1782

Svo var orðið aldarfar

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

SSvo var orðið aldarfarað orðið gat ei lakarhúsgangslýður og letingjarlifðu' í sælgæti matarærsl og uppáfyndingarútfluktir með drambieinn var klumsa, annar snareinhver stóð á þambi.

Glúmur Gylfason · 1782

Heimildir og samhengi

Úrdráttur úr Eldriti séra Jóns Steingrímssonar um ,,viðburði áður en eldurinn yfirféll", minnir á að það sem olli bæði Nóaflóðinu og Tyrkjaráninu, þ.e., óguðlegt líferni í aðdraganda atburðarins, gilti og hér. (Sjá 1632).
,,Áður en þessi landplága og jarðeldur yfirféll voru mikil landgæði og árgæska þó yfir tæki það síðasta árið, því í undanfarin nokkur ár hafði ei verið þvílík blómgan og ávöxtur á öllu með spökustu veðuráttu til lands og sjóar. En hvílíkt stjórnarleysi, andvara og iðrunarleysi hér í Vestri-Skaftafellssýslu var um þann tíma, sérdeilis í þessu Kirkjubæjar eður Kleifarþinglagi, hjá allmörgum er sorglegra til frásagnar en ég geti þar orðum eytt að. Hér lifðu menn í sælgæti matar og drykkjar, sumir orðnir svo matvandir, einkanlega þjónustufólk, húsgangslýður og letingjar, að ei vildu nema þá allrabestu og krydduðu fæðu. Drykkjuskapur og tóbakssvall fór að sama lagi. ...prestar fundust þeir hér sem ei þóttust geta framflutt ...guðsþjónustugjörð nema fyrir brennivínstilstyrk. ...Nýjar uppáfyndingar og útfluktir ...margur húsgangur ... um of vanþakklátir þá þeir ekki höfðu úr hvers manns hendi það þeir vildu. ...allir þjófar voru frómir kallaðir. Gekk þetta vafstur hér mest á undir sjálfa eldkomuna. ...Þegar drambsemin er sem hæst er hún fallinu næst".

Vefurblog.dv.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1782

  • Ís fyrir sunnan Eyrarbakka
← 1782Ís fyrir sunnan Eyrarbakka1783 →Móðuharðindin hófust á