Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1815
1815
1815

Útsendur hingað engill var

Hljóðbrot0:00

Lag Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18

ÚÚtsendur hingað engill vaross er skylt að munaHenderson ei á hana sparer kölluðu' í græsku gárungarGrútarbiblíuna. .

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1815

Heimildir og samhengi

,,Engill sendur frá himni”, orð Jónasar Gíslasonar vígslubiskups, um Skotann Ebenezer Henderson, er ferðaðist um Ísland 1814-1815 fyrir
Breska og erlenda biblíufélagiðWikipedia (opnast í nýjum flipa) með um 10.500 Nýja testamenti og Biblíur og seldi ódýrt eða gaf.
Biblía þessi var prentuð í Kaupmannahöfn og hafði villuna ,,harmagrútur” fyrir harmagrátur.

Dr. Gunnlaugur Jónsson leggur til að þessi fyrsta Biblía sem almenningur eignaðist hljóti heitið Hendersonsbiblía.

10. júlí var Hið íslenska biblíufélag stofnað að frumkvæði Hendersons.
Útlendinga, Henderson og Rask, þurfti til að við Íslendingar færum að starfa saman í félögum, sem ekki þurftu á andstæðingi að halda til að lifa af – sjá 1816.
Í Ritsafni Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi, bls. 75,
rekur hann Íslendingseðlið til þess ,,hve fátt og dreift fólkið hefur verið og samneyti lítið milli manna vegna landshátta".
Dr. Stefán Einarsson segir í Skáldaþing, 142, að Einar H. Kvaran hafi í einni sögu sinni fundið að ófélagslyndi og þótt mikið á bresta að að menn ræddu málin af skynsamlegu viti, illindalaust.

En Jakob Hálfdánarson, rekur eðli Íslendinga til landnámsmanna og segir í bréfi skrifuðu laust fyrir aldamótini 1900, birt í ,,Ævintýrið frá Íslandi til Brasilíu", bls. 292: ,,...á yfirstandandi tímum kemur það fram, að ...fjöldi manna mun illa þola annarra yfirráð ... - Af Þessum sökum er félagsskapur hér svo afar örðugur, að hann mun ekki hjá öðrum þjóðum á líku menningarstigi vera jafn torveldur". (Bréfritari, J.H., stofnaði fyrsta kaupfélagið, K.Þ. 1882).

Lúðvík Kristjánsson, Vestlendingar I, 37: ,, ... gildi félagshyggju lá Íslendingum í léttu rúmi. Útúrboruháttur og samtakaleysi grúfði sem skuggi yfir hverri sveit. ... Öll félagsleg mök utan heimilisins máttu heita Íslendingum framandi".
Síðan vitnar Lúðvík í sr. Ólaf Sívertsen í Flatey: ,,Það mun ei lítið hafa hnekkt framförum Íslendinga, hve skammsýnir, ragir og tortryggnir þeir hafa oft verið til samtaka í þarflegum fyrirtækjum".

Karl Sigurbjörnsson: Í helgum steini, bls. 193: ,,Biblían hefur átt samleið með okkar þjóð í þúsund ár. Sagan sem Biblían segir hefur verið hluti af sögu og lífi þjóðarinnar ...mótað menningu, list og ljóð, réttarfar og siðgæði til ómældrar blessunar. ...Samt er Biblían tvíeggjuð, hún hefur iðulega verið misnotuð sem lögbók og refsivöndur. ...En þrátt fyrir slíka misnotkun í sögu og samtíð þá verða áhrif Biblíunnar til góðs seint ofmetin".

Vefurbiblian.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1814Bjuggu undir einu þaki1816 →Glöggt var eyra gestsins þá