Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1814
1814
1814

Bjuggu undir einu þaki

Hljóðbrot0:00

Lag Rósin

Lag kann á að verða stór

BBjuggu undir einu þakiÁrni og Rask með Bjarna Thórdómstjóranum tæpt að takitveimur höndum í þann kór.

því Castenskjold til Kaupmannahafnar/kominn er til hirðar, - þarglóðum elds í gríð hann safnargrimmt að höfði Magnúsar.

Napoleon, ljón og miklimeð stolnum páfans Péturslykliparar sig við Ása-Þór.

Fyrir kapann legðist lítiðléti hann sér duga Franzkann svo ekki að varst vítiðog veður beint til andskotans

Glúmur Gylfason · 1814

Heimildir og samhengi

Johan Carl Thuerecht von CastenschioldWikipedia (opnast í nýjum flipa), var stiftamtmaður á Íslandi 1813-1819

Castenskjold var tekinn fram yfir Magnús Stephensen í embætti stiftamtmanns 1813 og urðu litlir vinir eftir það.

Niðurstaða vísunnar er tilvísun í Árbók Reykjavíkur, Jóns biskups Helgasonar, og Eld á Möðruvöllum, Torfa K. Stefánssonar Hjaltalín um að erindi stam. Castenskjolds til Hafnar hafi verið að fá Viðey sem embættisbústað og koma Magnúsi Stephensen burt þaðan. Bjarni Thorarensen (1786-1841), vinur og félagi Castenskjolds frá námsárum í Höfn sá vetrarlangt um embætti hans og hús, Austurstræti 22, og hýsti þá sr. Árna Helgason (1777-1869), og Chr. Rask (1787-1832). Torfi rekur á bls. 248 að Bjarni og Castenskjold hafi tekið á tveimur spillingarmálum sem snertu skjólstæðinga Geirs biskups og am. Bjarna Þorsteinssonar sem þá hafi komið ónytjungsorði á stiftamtmann, t.d. BÞ í ævisögu sinni, en illu orði á Bjarna Th., en Geir sóttist auk þess líka eftir Viðey.
Eftir heimkomu beggja 1816, notuðu þeir Magnús Stephensen dómstjóri og Castenskjold stiptamtmaður enn hvert tækifæri til að sverta hvor annan í augum stjórnarinnar, sjá Björn Þórðarson, Landsyfirrétturinn 1801 - 1919, bls. 72.

Séra Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar, l, bls. 221: ,, ... er sagt að Magnús kæmist á tal við konunginn og kærði fyrir honum hve mjög hann væri affluttur ... veitti konungur honum þá konferenzráðs-nafnbót ... og í þeirri ferð fékk hann Viðey keypta ... þótt Castenskjöld legðist á móti".

Magnús fékk samt Viðey keypta á 14.000 rd. en stjórnin mjög fjárþurfi enda hafði konungshöllin, Christiansborg, brunnið í febrúar 1794 og 909 hús í borginni, en ári síðar önnur 305. Háskólinn og Dómkirkjan eyðilögðust í árás Englendinga1807 sem tók áratugi að endurreisa.
3. janúar1813 varð ríkið gjaldþrota vegna Napóleonsstyrjaldanna. Danmörk hafði verið nauðug í bandalagi við Frakka og varð að láta Noreg af höndum til Svía þetta ár, en Svíar höfðu verið ,,réttu megin” í Napóleonsstyrjöldunum.

Napoleon Bonaparte (1769Wikiwand (opnast í nýjum flipa) – 1821Wikiwand (opnast í nýjum flipa)) krýndi sig sjálfur til keisara 1804 að páfa viðstöddum, sem á málverkum er sýndur sitja í stól á meðan vígsluþeginn setur sjálfur kórónu Karls mikla á höfuð sér. Páfi er arftaki Péturs, postula, sem var handhafi lykla himins og heljar.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Napoleon, sem hafði verið í útlegð frá því í apríl 1814, komst aftur til valda að ári en Prússar og Englendingar sigruðu hans franska her við Waterloo, 18. júní 1815, og fór þá að sjá til sólar hjá Dönum og Íslendingum og náðu sér upp á næstu 6 árum.
En Napoleonsstyrjaldirnar höfðu leikið landbúnað í Evrópu grátt og þoldi almenningur hungursneyð veturinn 1816 / 1817 (Der Spiegel Geschichte 1 - 2022, 32).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Enn árið 1826 ritar kansellíið: ,,því hafi þótt það leitt að verða þess áskynja hvað eftir annað hversu samkomulagið milli dómstjóra og dómenda sé bágborið" og setur dóminum vinnureglur í 5 liðum". Bj.Þ. Landsyfirrétturinn, bls. 76.,

Magnús nefndi Viðeyjarkaupin dýrustu jarðakaup sögunnar, en þess ber að gæta, að eftir öll þessi áföll var gengi rd. fallið um 94%. Urðu Kaupmannahafnarbúar þá að pantsetja eigur sínar til þess að eiga fyrir mat.
Pantlánarar voru Gyðingar og brutust út blóðugar Gyðingaofsóknir í Kaupmannahöfn í september 1819.

Heimild m.a.: Eldur á Möðruvöllum, (237), Torfi K. Stefánsson Hjaltalín.

Vefurbooks.google.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1813Castenskjold meina því trauðla tengist1815 →Útsendur hingað engill var