Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1833
1833
1833

Djöfullinn varla svipur hjá sjón

Hljóðbrot0:00

Lag Hvar mundi vera hjarta mitt

DDjöfullinn varla svipur hjá sjóní sálmum Magnúsargagnrýni um þá orti Jónog Arnór veitti svar:,,Nú Stephensen dauður varla vaknará verri stað en þeirog eitt er víst að ekki saknareldsins neitt sá er deyr".

Undan Magnúsi Fjandinn flófékk þó Guð að lafaþá persónulegan Djöful dródómstjórinn í vafa.

Glúmur Gylfason · 1833

Heimildir og samhengi

+ Magnús Stephensen (f. 1762), dómstjóri Landsyfirréttar, gaf út umdeilda Sálmabók 1801 og prentaði í Leirárgörðum. Norðlendingar ortu ófagurt um ,,Leirgerði”, t.d. séra Jón Þorláksson á Bæsá, sem svo var kölluð þá (sjá 1819). Sr. Arnór Jónsson (1772-1853), á Hesti, vinur Magnúsar, tók þá upp hjá sjálfum sér að yrkja á móti: Greppssálm, sem lengi var ei vitað hver höfundur væri að. Í honum er vægðarlaust vikið að kvennamálum sér Jóns.

Í bundnu máli var barist í tæp 5 ár og skoðar sr. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín það hefnd Norðlendinga fyrir missi skóla og stóls frá Hólum (sjá 1802) enda kom am. Stefán á Möðruvöllum (sjá 1823), í veg fyrir málsókn á hendur skáldunum. (Eldur á Möðruvöllum frá bls. 155). Til er handrit Magnúsar að ákæru fyrir meiðyrði þar sem hann vitnar til lagagreinar um gapastólinn frá1746 sem e.t.v. þyrfti að grípa til.
Menn sættust þó að lokum og orti þá þjóðskáldið Jón kvæðið Bragarbót sem engan lætur ósnortinn.

Nákvæma umfjöllun Gils Guðmundssonar má lesa á eftirfarandi slóð, sem er úr fylgiriti Alþýðublaðsins. Hún byrjar þar á bls 21, en á bls. 45 er það sem mest snertir sálmabókina.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Þótt nafn Guðs þætti vandfundið í bókinni var meir saknað óvinarins prettvísa. Því svaraði Geir biskup Vídalín (sjá 1823), ábyrgðarmaður útgáfunnar: ,,Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur”.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Tvítugur orti Finnur Magnússon (sjá 1841) tvær vísur undir dulnefni sem vísaði til sr. Sæmundar M. Hólm, til að stríða Magnúsi Stephensen, þótt væri annars hans fylgismaður. Niðurlagið:
Allt er komid j Ærsl og Busl
Andleg Psalmma ordinn Bok:
Andskota-laust Rusl.
Heimild: Pétur Sigurðsson í Nordælu bls. 169.

En árið 2020 segir á bls. 77 í Sturlungu geðlæknisins (Óttars Guðmundssonar): ,,Kirkjan fórnaði bæði andskotanum og refsingum annars heims til að gera sig vinsælli".

Magnús sagðist á öðru ári hafa kunnað 30 sálmvers utan bókar og lesið húslestra 5 ára. Kona hans var Guðrún dóttir sm. Vigfúsar Scheving á Víðivöllum, þau systkinabörn, og Ragnheiður, kona am. Stefáns var systir Guðrúnar. Þeir, svilarnir, voru auk þess systkinabörn en kom þó ekki vel saman, t.d. eftir að Stefán, en ekki Magnús, var skipaður í þriggja manna nefndina sem stjórnaði landinu eftir Jörund 1809.

Fyrrnefndur séra Arnór varð prófastur við kvæðalokin, 1807, og fékk síðar Vatnsfjörð, ,,að skáldalaunum” sagði sr. Jón skáld á Bægisá. Arnór var hraðkvæður mjög og erfði sonur hans, séra Hannes, þann hæfileika og orti á kili uns hvarf í Ísafjarðardjúp 1851, sjá þar. (Heimild m.a. Ísl. æviskrár).

Dr. juris Björn Þórðarson skrifaði sögu Landsyfirdómsins og segir á bls. 129: ,,Bjarni Thorarensen kallaði hann (Magnús Stephensen) morðingja Alþingis, en með eigi minna rétti má kalla hann höfund Landsyfirréttarins ...affararsælustu réttarfarsbótar sem þjóð vorri hefur hlotnast frá 965 (stofnun fjórðungsdóma) til þessa dags". Síðan segir dr. Björn að rannsókn á lífsstarfi hans verði ekki til að draga úr þeim dómi Jóns Sigurðssonar, að hann hafi verið ,,einn merkilegasti maður sem verið hefur á Íslandi".

Ræða Magnúsar Stephensen við setningu Landsyfirréttar 1801 gefur ekki til kynna að honum sviði nafngiftin ,,morðingi alþingis", en færir rök fyrir því að engin eftirsjá sé að þingi sem ekki hafi ,,verndað og viðhaldið friði manna á milli, ekki varðveitt æru, líf eða eignir manna, ekki siðgæði ... þegar stjórnleysi og óhlýðni gegn lögunum tók yfirhönd ,,, dómum á Alþingi var oft hleypt upp með fjölmennu liði af uppvöðslumönnum, - óeirðamenn og ribbaldar tóku allt með valdi og vopnum ... þar af leiddi rán og gripdeildir, morð og dráp".

Myndir

Einnig frá árinu 1833

  • Baldvin treysti bændur á
← 1832Að skáldjöfur Goethe sé genginn, les,1833 →Baldvin treysti bændur á