Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1833
1833
1833

Baldvin treysti bændur á

Hljóðbrot0:00

Lag Sigga litla systir mín

BBaldvin treysti bændur áað byggi upp landið ísahjá borgarskríl við sundin sásíst nýtt alþing rísa.

Glúmur Gylfason · 1833

Heimildir og samhengi

+ Baldvin Einarsson (1801-1833) ættaður úr Fljótum, lfr. frá háskólanum Kh., upphafsmaður sjálfstæðishreyfingarinnar íslensku.
Hann skrifaði og gaf út ársritið Ármann á Alþingi í samræðuformi árin 1829 til 1832. Að hans eigin sögn var það ekki með ,,hinum stephensenska anda".
Á Vínarfundinum 1815, eftir Napólenonsófriðinn, var gert ráð fyrir ráðgefandi stéttaþingum í þýsku ríkjunum. Prússar riðu óðar á vaðið, en Friðrik VI., einvaldur Danakóngur, léði fyrst máls á slíku 1831, þegar hertogadæmin hans þýsku, sunnan Jótlands, voru mjög farin að ókyrrast.
Baldvin Einarsson tók þá (1832) að rita um sérstakt ráðgefandi þing fyrir Ísland á Þingvöllum, en á fjórum þingum frá 1835 fram til 1845 átti Íslandi fulltrúa á einu þeirra þriggja þinga sem stofnað var til í Danmörk. Það er svo ekki fyrr en að Jón Sigurðsson fer að láta til sín taka, t. d. í Nýjum félagsritum, 1841, að Reykjavík kemur til greina sem þingstaður. Fyrsta ráðgefandi þing fyrir Ísland var svo haldið í Reykjavík 1845 þegar íbúar eru 861 og síðan annað hvert ár til 1873.

Á vef Stjórnarráðsins: Vefurstjornarradid.is (opnast í nýjum flipa)
segir að 1835, á fyrsta ráðgefandi stéttaþinginu eða eftir það, hafi ,,íslenski" fulltrúinn, Lorentz A. Krieger stiftamtmaður, lagt til að Ísland fengi heimastjórn. ,,Það var í fyrsta sinn sem slíkar tillögur voru settar fram og hefur því ekki verið mikið haldið á lofti af Íslendingum".

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Sverrir Kristjánsson, Ritsafn I, bls. 68: ,,Bæklingi Baldvins um hin ráðgefandi þing var vel tekið í Danmörku, ...En sjálfum fannst honum viðtökurnar dauflegar hjá löndum sínum.
Í stjórnmálaskoðunum var Baldvin hinn varkári bóndi, ...fulltrúi bjargálna bænda. ...Honum er í nöp við lausamennskuna að hætti íslenskra bænda 19. aldar. En íslensk borgarastétt var enn ekki til þótt fyrstu frumur hennar væru farnar að vaxa ...í ,,borgarskrílnum" við sjóinn. Því eygði Baldvin í íslenskri bændastétt einni hinn forna kraft Íslands, er muni rétta við hag þess".

Sjá enn fremur bók Nönnu Ólafsdóttur, Baldvin Einarsson.

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1833

  • Djöfullinn varla svipur hjá sjón
← 1833Djöfullinn varla svipur hjá sjón1834 →Hjúum allur horfinn agi