Prentverkið fær nú latínuletur
Lag Hver veit hve nærri er ævi endi
Prentverkið fær nú latínuleturþá lýkur dvöl þess í Viðey.Hljóðan geirfuglinn síða'sta setursálgað var honum í Eldeyen Seðlabankinn sá um aðhann sneri aftur á sinn stað.
Heimildir og samhengi
Eina prentsmiðja landsins var í Viðey frá 1819 og hafði Magnús dómstjóri Stephensen öll umráð yfir henni sem framkvæmdastjóri Landsuppfræðingarfélagsins til 1827 en síðan á eigin vegum til dd. 1833 þótt teldist eign landsins.
Ólafur sekreteri, sonur hans, rak prentverkið til 1844, þegar stjórnin lét flytja það í Bergmannsstofu í Aðalstræti. Þar skyldi það þjóna væntanlegu þinghaldi. Kom þá latínuletur í stað hins gotneska sem verið hafði.
Illa þótti það letur sæma guðsorði.
Heimild, m.a. Einar Laxness, Íslands saga III, 117.
3. júní voru síðustu tveir geirfuglarnir drepnir í Eldey. Árið 1971 stóð Valdimar Jóhannesson, blaðamaður og lögmaður, (f. 1934), fyrir fjársöfnun til kaupa á uppstoppuðum geirfugli á uppboði í London. Seðlabankinn tryggði boð upp að fjórum milljónum, en niðurstaðan varð tvær, sem hefði nægt fyrir einbýlishúsi þá. Fuglinn varðveittur á Náttúrufræðistofnun.
Heimild: Morgunblaðið.
Sjá og frásögn Valdimars:
FréttDV (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Fuglinn sem gat ekki flogið, er bók um geirfuglinn, rituð af Gísla Pálssyni, útgefandi Mál og menning 2020. Ritdóm skrfaði Stefán Pálsson í Sögu LIX - 1 - 2021 og segir bókina ekki gera tilraun til að tímasetja nákvæmlega hvenær síðasti geirfuglinn var drepinn.
Stefán Pálsson nefnir þar einnig aðra bók, Tímann og vatnið, eftir Andra Snæ Magnússon, sem geri að umfjöllunarefni geirfugladráp í Eldey 1844 þar sem hópur íslenskra sjómanna fór í eyna til fuglaleitar í von um góða greiðslu fyrir egg og fuglshami.
Enn segir Stefán Pálsson frá þeim viðbrögðum við bók Andra Snæs, að í Morgunblaðinu 16. janúar 2020 hafi birst löng og ítarleg aðsend grein Ólafs Bjarna Andréssonar með yfirskriftinni ,,Ég vil vera Ketill". ,,Þar vísaði Ólafur Bjarni til forföður síns, Ketils Ketilssonar bónda í Kotvogi í Höfnum. ... Taldi Ólafur áa sinn borinn ómaklegum ásökunum og að frásögnin byggðist á rangfærslum".
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)