Brókarlækjarbóndinn lá
Lag Fljúga hvítu fiðrildin
Brókarlækjarbóndinn lábrókarlaus níu sinnumþó að væri það ei hjáþetta mörgum kvinnum.
Heimildir og samhengi
Saga frá Skagfirðingum IV, 35: ,,Oddur Grímsson (1787 - 1858) á Brókarlæk hýddur fyrir framhjátekt á ný, sem var hans níunda".
Brókarlækur er annað (eldra?) nafn á Borgarlæk í Skefilsstaðarhreppi, norð-austanvert á Skaga - nafn, sem hefur þótt betur hæfa í þessu tilviki að minnsta kosti.
Gísli Konráðsson ritar ávallt Brókarlækur í sínum frásögnum.
Gísli Konráðsson, Saga Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 197:
,,Ingibjörg ...var ráðskona Odds bónda á Brókarlæk, og er talið að alls ættu þau níu börn saman, en Oddur átti konu þá er Arnbjörg hét, er lengi lá sjúk og karlæg, og voru börn þeirra Odds og Ingibjargar getin í frillulífi. En þótt þeim væri refsað, að því er kallað var, skildu þau aldrei að heldur, ella mundi ómegð þeirra hafa farið á sveitina".
Í Danmörk varð svona hegðun refsilaus 1785.
Hannes Pétursson ritar í Fólk og fróðleikur, bls. 113, um Jóhannes Oddsson frá Borgarlæk (Brókarlæk). Hann var eitt þessara 9 barna fyrrnefnds Odds og sór sig í ættina er hann 1865 gekkst við barni konu sem átti að heita gift Skaga-Pálma Jónssyni, hagyrðingi og þjóðsagnaskrásetjara, sem þá orti um hann klámfengna vísu: ,,Jóhannesarguðspjall – Ekki postula”, segir Hannes og getur heimildar hjá Rudolf Kemp í Sagnir um slysfarir í Skefilsstaðahreppi, bls. 3.
Aðrar heimildir: Íslendingabók, Sögufélag Skagfirðinga: Fólk og fróðleikur.
Mynd Mats Wibe Lund úr Skefilsstaðahreppi - nágrenni Brókarlækjar:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)