Skólapiltar Pétur dá
Lag Senn er komið sólarlag - Bj.Þ. 865
Skólapiltar Pétur dápater vorra kóra.Felsenborgarsögur sásöguhetja Dóra.
Heimildir og samhengi
Kór pilta í Latínuskólanum undir stjórn Péturs Guðjónssonar (1812-1877) heldur fyrstu söngskemmtun á Íslandi.
Jón Þórarinsson, í ævisögu Sveinbjörns Sveinbjörnssonar: ,,Þeir Íslendingar sem í fyrsta skipti heyrðu margradda söng í apríl 1848 við sorgarhátíð í minningu Kristjáns konungs Vlll., eða í október um haustið, við endurvígslu Dómkirkjunnar, urðu aldrei samir menn eftir”. (Sjá 1840).
Hér mun átt við söngflokk skólapilta Lærðaskóla undir stjórn Péturs Guðjónssonar, sjá 1848.
Slóð: HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)
Prentverkið á Hólum var lagt niður 1799.
Í Sögu Akureyrar I, bls. 117, segir Jón Hjaltason frá, að undir miðja 19. öldina urðu Norðlendingar staðráðnir í að koma sér upp prentsmiðju og skutu saman peningum. Sumarið 1550 kom slík til landsins. Þar var fyrst prentað blaðið Norðri í mars 1852, ritstjóri Björn, sonur sr. Jóns Jónssonar á Auðbrekku, bróðir Guðnýjar (sjá 1836). Fram að þessu hafði svo til eingöngu verið prentað Guðsorð á Íslandi auk Íslendingasagna (1688) og urðu hörð viðbrögð þegar fyrir norðan voru prentaðar ,,Felsenborgarsögur, ævisögur ýmsra sjófarenda”.
Er sem landshlutarígur hafi líka komið hér til.
Klemens Jónsson segir í sinni Sögu Akureyrar, að ekki þótti allt uppbyggilegt sem Grímur Grímsson Laxdal (1801-1866) gaf út. Þar á meðal Felsenborgarsögur, prentaðar 1854.
Halldór Laxness (1902-1998) lét söguhetjuna, Ólaf Kárason Ljósvíking, lesa þær.
HKL nefndur Dóri af ættingjum að eigin sögn.
Halldór Guðmundsson í formála að Ljósi heimsins: ,,Felsenborgarsögur eru heldur ómerkilegur littaratúr, þýskar ævintýrasögur frá 18. öld".
Þegar Þórður Hólabiskup Þorláksson prentaði fyrst Íslendingasögur, um 1688, bað hann kónginn leyfis enda þótti goðgá að prenta veraldlegan texta með sömu stílum og guðsorð. Hér hafa því orðið tímamót í bókaútgáfu 1854.
Tilvísun:HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)
Pater: faðir, latínusletta í Latínuskólanum.