Tóti þótti konum klúr
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Tóti þótti konum klúrer körlum trú réð boða.Ef halda ættu fleiri frúrfæru sér að voða.Fréttast tók þá Eyjum úrað einkvæni lítt dugikarlar þurfi fleiri frúrfimm - ef ekki tugi.
Heimildir og samhengi
Á fimmta áratug nítjándu aldar kynntust tveir Íslendingar mormónatrú í Kaupmannhöfn er þeir voru þar í iðnnámi. Guðmudur Guðmundsson úr Oddasókn lærði gullsmíði, en Þórarinn nokkur Hafliðason, snikkaraiðn. Trúfrelsi komst á í Danmörk með afnámi einveldis og stjórnarskrá 1849, en ekki á Íslandi fyrr en 1874 og með konungsúrskurði 1875 voru fyrst gefin saman hjón hér af sýslumanni og voru þau mormónatrúar.
Þórarinn (Tóti), fluttist til Íslands 1849 og settist að í Vestmannaeyjum þar sem hann boðaði mormónatrú þar til hann drukknaði 1852. Guðmundur gullsmiður kom fyrst, 1851, til síns heima, en fór brátt til félaga síns, Þórarins, og boðuðu trúna í Eyjum. Fylgjendur þeirra fluttust til Utha um Danmörk. Lögðu hjón af stað 1854, aðrir ári síðar. Stundum sagt að hafi flúið trúarofsóknir í Vestmannaeyjum.
Tilvísun: Gestur l, 167, safnrit Gils Guðmundssonar.
Nánar hér:Vefursafnahus.vestmannaeyjar.is (opnast í nýjum flipa)
HeimildHeimaslóð (opnast í nýjum flipa)
Vefurkirkjajesukrists.org (opnast í nýjum flipa)
Vefurnyr.ruv.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurafangar.com (opnast í nýjum flipa)