Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1855
1855
1855

Vindur, segl og árar ört

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

VVindur, segl og árar örteinatt drifu hripin.Nú kol úr djúpi kölska, svört,knýja gufuskipin.

Vera má það satt sé sagtþótt sönnu´úr mörgu togni:til Reykjavíkur reykjarjagtrataði hafi í logni.

Sæmund fróða fékk á minntaf fleyi ósið rýkurfyrsta skipti er kolum kyntkom til Reykjavíkur.

Glúmur Gylfason · 1855

Heimildir og samhengi

Reykurinn af réttum iðnbyltingarinnar í evrópu nær í bókstaflegum skilningi til Reykjavíkur 1855 með gufuskipi, en um 1880 með bárujárni, 1913 með bílum og gúmmístígvélum,
sjá FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
,,Öldin sem leið" segir frá komu danska skrúfugufuskipsins Thor sem 27. júní kom og flutti til Reykjavíkur stam. J. D. Trampe og þrjá erlenda ferðamenn.
Fólk mátti skoða gripinn þá 9 daga sem hann lá hér.
Þremur árum síðar, 1858, byrja póstferðir með gufuskipi, Arcturus, milli Íslands og Danmerkur, 6 ferðir á ári á tímabilinu apríl til nóvember.

Mynd í Öldinni sýnir seglskip með dálitlum reykháfi, en fyrstu skrúfuskipin voru seglskip með hjálparvél.

Aflabrestur við Faxaflóa þetta sumar var kenndur hávaða frá skrúfu skipsins, sem hefði fælt fiskinn frá. Þetta rifjaði Hannes Hafstein upp þegar þingið fjallaði löngu síðar um strandsiglingar. Eimskip sem brenndu kolum komu til sögu á fyrsta áratug 19. aldar.

Í Fjallkirkjunni III, 279, skrifar afi á Knerri Ugga (Gunnari Gunnarssyni): ,,...nú fæla ótætis varðskipin og aðrar bannsettar gufublístrur fiskinn af miðunum, borin von að nokkur skepna af Guði sköpuð geti unað við allan þann reyk og varsímaskrölt og skarkala, bráðum hillir ekki framar undir segl á sjó".
Þetta á að gerast þegar síminn er nýkominn, en andstæðingar hans kvörtuðu undan hávaðaskvaldrinu sem bærist um loftin eftir símalínunum.

Norðri 15. júlí 1857 segir frá ensku gufuskipi sem kom til Akureyrar ,,til að rannsaka umkvartanir þær yfir sjómönnum af enskum fiskiskipum sem Grímseyingar hafa borið undir hina dönsku stjórn”.
Sjá þar um: Menn og minjar I, bls. 28 og 30; þar sem Jón Borgfirðingur er við réttarhald sýslumanns á Siglufirði ,,viðkomandi ránsmáli Enskra við Grímsey sumarið 1856”.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Gufuskip sem er enn í notkun: Vefurnauticareport.it (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1855

  • Á Fróni allra landa lýð
← 1854Tóti þótti konum klúr1855 →Á Fróni allra landa lýð