Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1890
1890
1890

Hallgrímur presta ei hrósi jós:

Hljóðbrot0:00

Lag Sá frjáls við lögmál

HHallgrímur presta ei hrósi jós:,,Sjá! Hérna eru dyrnar!”Skip mega hafa leguljósog lögskrá áhafnirnar.

Í uppeldinu á ýmsu gekksem ætti að varða löggubrennivín að bragða fékkBirkiland í vöggu.

Kaffi á áttunda ári sauper áfengisdrykkja þótti fínrenndi úr ef rétt var staupreykti og tuggði nikótín.

Glúmur Gylfason · 1890

Heimildir og samhengi

Fyrst varð vart við breska togara 1889. Ári síðar sett lög um lögskráningu áhafna og siglinga- og leguljós skipa. ,,Þótti danskur óþarfi" segir í Virkum dögum, ævisögu Sæmundar Sæmundssonar.

Biskup, Hallgrímur Sveinsson, vék nokkrum prestum frá vegna ofdrykkju - sjá aths. við 1889.
Drukkinn prestur:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Úr ævisögu Sumarliða Sumarliðasonar (1865) sem var gullsmiður og sonur bóndans á Kollabúðum: ,,Mörg heimili tóku á sumri út tvær til fimm tunnur brennivíns auk annars áfengis ...naumast þótti kaffibolli bjóðandi nema að brennivínsflaska væri sett fram um leið sem gesturinn átti að skammta sér úr sjálfur. Þeir sem skerast vildu úr leik með að fylgja þessum siðum þóttu naumast menn með mönnum”.

Dagdrykkja níunda tugs 19. aldar kemur fram í kaflanum: Dauðadrykkjan í Austurkoti, bls. 31 í Jarðvistarsögu Jóa Vaff, sem Guðmundur Daníelsson bjó til útgáfu 1984.

Gestur Pálsson samdi ,,Kærleiksheimilið" um 1882. Þar segir í IX. kafla, 5. línu: ,,Jón hafði látið gefa líkmönnunum góðan morgunverð áður en þeir fóru af stað, og svo fékk hann þeim tvær þriggja pela flöskur af brennivíni til þess að hafa í nesti um daginn".

Harka hljóp í deilurnar, með og móti Bakkusi:
Dagbók Eyjólfs Guðmundssonar á Hvoli í Mýrdal, 13. mars 1898:
,,Presturinn vill heldur deyja í Hvammsá en að bindindismaður dragi hann uppúr"; og síðar segir Eyjólfur að amast hafi verið við bindindissamkomum í kirkjunni ...,,og leituðum við þá á náðir mammons, í vörugeymsluhúsi Brydes (í Vík) ...mátti sitja á víntunnunum, bara ekki opna þær".
(Kjartan Ólafsson: Verslunarsaga V-Skaftfellinga I, 348-9).
Sjá og: Jóhann Hjaltason: Frá Djúpi og Ströndum, Iðunn 1963; Guðfræðingatal, Leiftur 1957, bls. 309).

Jóhannes Birkiland, Harmsaga ævi minnar, bls.16:
,, ... ekki ósennilegt að faðir minn hafi boðið mér að bragða brennivín næstum í vöggu.
Eitt af því fyrsta sem ég man ... er að ég var orðinnn mjög sólginn í brennivín.
Þá var og ein af mínum fyrstu endurminningum sú, að mig var farið að langa mjög til þess að reykja og ,,vera maður með mönnum". ... Gestur lét mig reykja úr pípu sinni allt hvað af tók. Þetta endaði með uppköstum.
... Að ég hafi verið nærður á kaffi jafnframt móðurmjólkinni virðist mér ekki fjarrænt. Þegar ég man fyrst eftir mér drakk ég kaffi ærið óhóflega.
Á áttunda aldursári nægði mér ekki minna en tveir og þrír stórir bollar af kaffi í einu. ... er hér var komið sögu - lagði ég sem sagt heimilið undir mig og drottnaði sem einvaldur ... harðstjóri".

Jóhannes Birkiland, Harmsaga ævi minnar, bls. 53: ,,... vor og haustkaupstaðaferðir til Sauðárkróks: Einu sinni að vorlagi syfjaði mig mjög á heimleið. Ég var ekki með lest burðarhestanna. Steig ég allt í einu af baki og steinsofnaði, en vaknaði löngu síðar, haldandi í taum hestinum, er var að bíta við fætur mér. ... vinnumennirnir tóku að slóra á bæjum ... og hestalestin var látin eiga sig. Hestarnir skiluðu sér allir en bagga vantaði á suma þeirra og var reiðingurinn kominn undir kvið þeim".
Höfundur. JB, fæddur 1886 en vínbannið kom 1915.

Sjá og 1859.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1890

  • Eftir áratugi tvo
← 1889Loks hjá köllum kom til tals1890 →Eftir áratugi tvo