Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1909
1909
1909

Margir lengi vildu' ei veita

Hljóðbrot0:00

Lag Rósin

MMargir lengi vildu' ei veitavatni úr Gvendarbrunnunumfyrr þeir skyldu hundar heitaen hætta að ausa úr tunnunum.

Mátti Guðmundur læknir leitalengi að Jóni' og Gunnonumsem málið vildu í þaula þreytaþakka fáir kunnu' h'onum.

Björnson mörgum burtu durtibola má að spíri frætaugaveiki til þess þurftitækist leiða vatn í bæ.

Skilst að um sig grunur grafigiski menn á þetta' og hitthvaða Gvendur gefið hafiGvendarbrunnum nafnið sitt.

Glúmur Gylfason · 1909

Heimildir og samhengi

Vatnsveita Reykjavíkur kom 1909.
Guðmundur Björnsson (1864-1937), læknir, hefur verið kallaður faðir vatnsveitunnar í Reykjavík.
Veitunni náði hann fram með útreikningum sem sönnuðu að margfalt dýrara væri að kosta vatnsbera. En úrslitum réði að taugaveikifaraldur 1906-7, sem kostaði 98 mannslíf, var rakinn til vatnsbóls í Skuggahverfi.
Friður náðist þó ekki.
Guðjón Friðriksson, Bærinn vaknar, bls. 265:
,,En það var óhugur í sumum ... ekki leið á löngu þar til allt logaði í illdeilum ... Guðmundur Björnsson hlaut sinn skammt. Hann sagði síðar: ,,...En svo var ég orðinn óvinsæll vegna vatnsveitumálsins, að ekki þótti viðlit að ég yrði í kjöri við næstu bæjarstjórnarkosningar"".
Tunnurnar vísa til þess að eftir að bárujárn fluttist inn um 1880fóru margir að safna vatni af húsaþökum.

Halldór Laxness í Sölku Völku, bls.376: ,,Einnig vildi Salka Valka og verkalýðsmenn að gerð væri rafmagnsleiðsla í bænum (Óseyri við Axlarfjörð) og frárennsli fyrir skólp, en slík uppástunga þótti auðvitað hlægileg, vegna þess að heldra fólk hafði auðvitað nógar vinnukonur til að bera inn vatn og hella út skólpum".

Vefurvatnsidnadur.net (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Vatn: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1909

  • Fyrir kóngi Björn sig bukkar
← 1908Kvenna enginn veit nú vamm1909 →Fyrir kóngi Björn sig bukkar