Við erum, rétt eins og Evrópuálfan,
Lag Einn var að smíða ausutetur
Við erum, rétt eins og Evrópuálfan,öllu' okkar viti frádómarinn ritaði' og dæmdi sig sjálfanfyr'ir dónaskap eftir á.
Heimildir og samhengi
Vilhjálmur Þ. Gíslason: Blöð og blaðamenn, bls. 244:
,,Ekki slotaði blaðadeilum eftir 1908 ...hófst málaferlaalda 1910 er Ísafold hóf 30 meiðyrðamál gegn Lögréttu og viðlíka mörg gegn Reykjavíkinni og Þjóðólfi og þessi blöð stefndu á móti.
Í tveimur eða þremur tilfellum var Lögrétta dæmd fyrir greinar sem dómarinn hafði sjálfur skrifað nafnlausar".
Faðir Vilhjálms, Þorsteinn Gíslason, skáld og m.a. ritstjóri Lögréttu (1901) ritar 65 ára gamall 1932 og lýsir ástandinu um og eftir 1890: ,,Ritstjórarnir hér í bænum, sem áttu í blaðadeilum innbyrðis, heilsuðust aldrei, þótt þeir mættust á götu eða á samkomum, litu ekki hver við öðrum og töluðust aldrei við. (Sbr. Merkir Íslendingar IV, 297).
Dæmi um orðbragð frá framboðsfundi á Akureyri, Jón Ólafsson, (1871) nú heimastjórnarmaður:
,,...druslur, þorparar, aumingjar, gjaldþrotamenn, skýjaglópar, öreigar og fjárglæframenn”.
Þarna fylgdu Íslendingar tíðarandanum eins og hann var í evrópu í aðdraganda heimsstyrjaldarinnar fyrri.
Að fenginni heimastjórn var andrúmsloftið þannig, að húsráðendur og gestgjafar úthýstu fólki með andstæðar stjórnmálaskoðanir og jafnvel ættingjum þeirra: Eiginkona Valtýingsins Stefáns Stefánssonar, skólameistara á Akureyri, Steinunn Frímannsdóttir, fékk þess vegna ekki - síðla kvölds - næturskjól á bæ sunnan Holtavörðuheiðar á suðurleið með veikan dreng þeirra, segir í ævisögu Huldu Stefánsdóttur. Leiðir hugann að Lúkas 2., 7.
Björn Jónsson, ráðherra, fékk ekki inni á Hótel Akureyri, hóteleigandinn var Heimastjórnarmaður.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Aðrar heimildir: Jón Hjaltason, Saga Akureyrar III, bls. 63 og 66.
Sumir skýra þessa hörku í skiptum manna á milli með því, að þegar örsmá eyþjóð á engan óvin, þá sé tekist á af meiri hörku innbyrðis.
Brátt, 1920, krefst þjóðarmetnaður þess að dómsstigum verði fækkað úr þremur í tvö með því að falla frá því samkomulagi frá 1918, að Hæstiréttur Danmerkur, með einum íslenskum dómara, verði eins og hingað til 3ja dómstig fyrir Ísland.
Landsmenn þá um 90 þúsund,- fátt um löglærða - og þeir einatt í sama pólitíska flokki.
Í þessu andrúmslofti skrifar Jónas Jónsson frá Hriflu Íslandssögu þá sem kennd var börnum mest alla 20. öld og mótar enn söguskoðun Íslendinga enda hefur verið sagt að jafn erfitt sé að breyta söguskoðun þjóðarinnar eins og koma tannkreminu aftur í túbuna.