Gefst að líta á Melum mark
Lag Augun mín og augun þín
Gefst að líta á Melum markí möskvum trúi að syngiBirni annað búa sparkbræður hans á þingi.
Heimildir og samhengi
Tekinn í notkun íþróttavöllur sunnan núverandi Hringbrautar, samsíða henni og nokkuð vestur fyrir blómaskálann á horni Birkimels. Melavöllurinn (mynd) tók við af þessum velli 1926 og sneri vestur / austur samsíða Suðurgötu.
Nánar í Sögu Reykjavíkur, Bærinn vaknar II, bls. 152. og hér:
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
Skyldi knattspyrnufélag hafa verið dæmt til að leika fyrir tómum velli og áhorfendur þá gripið til þessa ráðs?
Smella á: FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Flokksmenn rh. Björns Jónssonar (sjá umsögn 1909) snerust gegn honum undir forystu Skúla Thoroddsen og Bjarna frá Vogi - að sögn Hannesar Þorsteinssonar. Kallaði Björn þá ,,sparkliðið” og vantraustið nefnt ,,Sparkið".
Stóð val um ráðherradóminn þá á milli Skúla og Kristjáns (1852-1926) dómstjóra Jónssonar frá Gautlöndum, er varð hlutskarpari og ,,olli því píslarvætti hans í ,,Landsbankafarganinu" 1909", segir í Ævisögu Hannesar Þorsteinssonar.
Sbr. og:
Einar Laxness: Íslands saga I, 146, III, 41; Öldin sem leið.
Sparkið:MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Jói útherji: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Á Melavellinum þetta ávallt spilað í leikhléi:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)