Hannes aftur koma kann.
Lag Ó, fögur er vor fósturjörð
Hannes aftur koma kann.Kætist ekki stúturer þingið syngur bjór í bannúr Bræðing verður Grútur.Einars Ben. var önnur sýner ýmsum þótti' af bera:,,Þjóð sem bannar brennivínbúin er að vera”.
Heimildir og samhengi
Eftir þrjár vikur Kristjáns Jónssonar á Gautlöndum í embætti ráðherra kannaði Skúli Thoroddsen fylgi sitt með því að flytja vantrauststillögu á ráðherrann, en hún féll 12 - 13. Kristján baðst þó lausnar 23. júlí og Hannes Hafstein varð þá ráðherra á ný.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
Í samræmi við þjóðaratkvæðagreiðslu 1908 samþykkir þingið bjórbann, en innflutningsbann á vín, og sölubann frá 1. janúar 1915.
Vínbann var í Noregi 1916-1927 eftir þjóðaratkvæðagreiðslu, Færeyjum 1907-1992, Finnlandi 1919-1932, Rússlandi 1914-1925, USA 1920-1933.
Um drykkjuvenjur Íslendinga á þessum tíma, sjá: 1889, 1890.
Móðurinn frá Uppkastskosningunum 1908 var runninn af mönnum í haustkosningum 1911 þegar aðeins 9 af flokksmönnum Björns Jónssonar náðu kosningu.
Var þá samin ný tillaga að Uppkasti, Bræðingur, án ríkisráðsákvæðis, sem stjórnin féllst á, en gerði þó þá breytingu frá því fyrra orðalagi, að Íslandsráðherra sæti í ríkisráði, að hann ætti rétt á setu þar. Það gat Alþingi Íslendinga með engu móti sætt sig við og tók bræðinginn ekki á dagskrá, og breyttist þá nafn hans í Grútur.
Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson II, 182:
,,Búið er að samþykkja algert áfengisbann í landinu og það þykir Einari Benediktssyni hin mesta hneisa. Blaðið Ingólfur hefur eftir honum: ,,Hr. Einar Benediktsson er eindreginn andbannsmaður. Honum þótti úrslit bannmálsins vera prófsteinn til þeirrar giftu eða gáfu sem vér Íslendingar hefðum til að vera sjálfstæð þjóð”". (1917).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)