Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1913
1913
1913

Við orgelið Sigfús Einars sest.

Hljóðbrot0:00

Lag Ó Guð, þér hrós og heiður ber

VVið orgelið Sigfús Einars sest.Úr Öskjuhlíð flytja grjót með lest.Í Morgunblaði' ef blaðar, lestað bíllinn muni leysa' af hest.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Sigfús náði ei læra lögsamt lítið tjóniðþví sjálfum tókst að semja lögog Sigfúsartónið.

Brynjólfur þekkt Bakkus mun​betur en nefndin vildi​er sagðist við það ekki un-​a og leiðir skildi.​

Glúmur Gylfason · 1913

Heimildir og samhengi

Sigfús (1877-1939) Einarsson, borgara, Eyrarbakka, verður dómorganisti til dd. eftir Brynjólf Þorláksson (1867-1950).

Brynjólfur tók 1903 við af Jónasi Helgasyni sem verið hafði 2. í röð dómorganista og tók við af Pétri Guðjónssyni (sjá 1840) sem lést 1877.
Jónas Helgason (1839-1903) hafði verið reglumaður og samvikusamur með afbrigðum, en Brynjólfur miður og vék 1913, sjá nánar 1903 og ,,Dómkirkjan í Reykjavík, eftir Þóri Stefensen, II. bindi frá bls. 168.

Sigfús Einarsson hélt 21. árs stúdent til Kaupmannahafnar til laganáms, en hætti og sneri sér eingöngu að tónlist.
Við Dómkirkjuna tók Sigfús í arf tónlag Johanns Wiberg frá 1832, þýsks organista, þá við Vor Frue Kirke í Kaupmannahöfn, sem Pétur Guðjónsson, organisti, hafði 1840 fellt íslenskan texta að. Sigfús setti orgelundirleik við laglínur Wibergs, sem seinna (hvenær?) var farið að syngja SATB þegar konur höfðu bæst í sönghópinn, sem í voru 6 karlmenn þegar Sigfús tók við dómorganistastöðunni.
(Sr. Þórir Stephensen, Dómkirkjan II, bls. 172).
Á bls. 171 í II. bindi sr. Þóris
segir að 1903 hafi fyrst komið fram opinberlega blandaður kór í Dómkirkjunni undir stjórn Brynjólfs Þorlákssonar og söng lögin frá útför forsetahjónanna 1880, sjá 1879.
Giska má á að talan 6 í sönghóp Dómkirkjunnar sé fengin frá stöllu hennar í Kaupmannahöfn, en þar sungu við messur enn hálfri öld síðar, og lengur, 6 í kór, sem að vísu var (er) SATB. Sama tala fastra söngvara var í Havnarkirkju í Tórshavn, Færeyjum, höfuðkirkju eyjanna, um og eftir miðja 20. öld a.m.k. - allt karlmenn.

Bók Johanns Wiberg, Messemelodier, er varðveitt á Landsbókasafni, sjá mynd.
Sönglög Sigfúsar Einarssonar lifa enn með þjóðinni og njóta verðskuldaðrar hylli. Sjá 1840.

Þórir Stephensen, Dómkirkjan II, bls. 176: ,,...1934 komu út Messusöngvar ...sem Sigfúsi var falið að semja (svo) við texta Helgisiðabókar sem kom út sama ár. Þau lög eru byggð á þeirri hefð sem fyrir var og kennd er við danska (svo) tónskáldið Wiberg".

Vefurmusik.is (opnast í nýjum flipa)

Grjót til hafnargerðar í Rvk. sótt með járnbraut í Öskjuhlíð og víðar.

Morgunblaðið byrjar göngu sína 2/11, eigendur Vilhjálmur Finsen (1883-1960) og Ólafur (1884-1919) sonur Björns rh. Jónssonar, blaðamaður Árni Óla (1888-1979). 1919gerðu kaupmenn tilboð í Morgunblaðið ,,sem ekki var hægt að hafna”, þ.e., sögðust annars stofna eigið blað og auglýsa eingöngu þar, segir Alltaf á heimleið, ævisaga Vilhjálms Finsen, 1953.
Kemur fram hjá Vilhjálmi að Ólafur færði honum fréttirnar af ,,tilboði" Árvakurs, en einn kaupmannanna, Ólafur Þ. Johnson, var tengdafaðir hans. (Sjá 1885).

Fyrsta hestakerra sem getið er á 19. öld er sú sem Kristján IX. í Íslandsheimsókn sinni 1874 færði Lofti Gíslasyni í Vatnsnesi, Grímsnesi sem verðlaun fyrir framúrskarandi ræktunarstörf.
1904 byrjaði Kristinn Jónsson frá Hrauni í Ölfusi stórtæka hestvaganasmíði og hafði verkstæði sitt á Frakkastíg 12 í Reykjavík.
Varð þá til starfsstétt ökumanna, sem óku bæði fólki og vörum um bæinn.
Heimild: Guðjón Friðriksson, Samvinna á Suðurlandi l. 127.

Booklessbræður í Hafnarfirði fluttu nú inn 2ja manna bíl af gerðinni Aston Martin, sjá mynd. James Bond ók bifreið af þeirri gerð í kvikmyndum.
Að frumkvæði séra Jakobs Lárussonar, sem starfað hafði í Kanada, keyptu fjórir Vestur-Íslendingar nýjan 5 manna Ford fólksbíl, 20 hö., og fluttu til Íslands.
Heimild: Sigþór Sigurðsson: Vatna-Brandur, bls. 38.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Til hafnargerðarinnar í Rvk. voru notaðir tveir Ford vörubílar, sem keyptir voru nýir til Íslands 1914.

Fyrstu tveir bílarnir, Thomsensbíllinn, 1904 og Grundarbíllinn, 1907, voru keyptir notaðir erlendis, óséðir, sannkölluð hrossakaup, en þeim var gjarnan ýtt eða dregnir áfram af hestum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Um hafnarstæðið, sjá, heimildir Guðjóns Friðrikssonar um Einar Benediktsson 1917, í ævisögu Einars, bls. 423.
Slóð á vörubíl:
Vefurnafar.blog.is (opnast í nýjum flipa)

Bjarni Böðvarsson: Bílavísur
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Ómar: Kappakstur: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sigfús Einarsson, Draumalandið:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Lestar og vörubílar flytja fleira
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1913

  • Fyrstur kom og fyrstur hlaut
← 1912Hannes aftur koma kann.1913 →Fyrstur kom og fyrstur hlaut