Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1916
1916
1916

Kúgildi falla kóngsins dauð

Hljóðbrot0:00

Lag Komdu nú að kveðast á - Bj.Þ. 849

KKúgildi falla kóngsins dauðkrata út springur rósinFramsókn varla reiknast rauðríki hennar fjósin.

Glúmur Gylfason · 1916

Heimildir og samhengi

Í kosningum 21/10 koma með stjórnarskrárbreytingunni 1915 sex landskjörnir þingmenn í stað konungkjörinna, og var kosningaréttur og kjörgengi þar 10 árum hærri, þ.e., 35 ár en konur og vinnumenn 40 ár. Þeir konungskjörnu voru í háði kallaðir kóngsins kúgildi sem vísaði til gripa í eigu landeiganda sem leiguliði fóðraði og skilaði honum hluta afurðanna.

Um úrslit kosninganna, þar sem ríkisráðsákvæðið lék enn aðalhlutverkið:
Tilvísun: Helgi Skúli Kjartansson segir í Ágripi af sögu Alþýðuflokksins, bls. 6 til 7, að eftir vinnutímadeilu við hafnargerðina í Reykjavík ~1914 hafi verið farið að tala um að þjóðfélagsþróunin leiði til vaxandi misskiptingar auðs og valda, stjórnmálaflokkarnir allir þjónar ráðandi stéttar og slái ryki í augu almennings með marklausum þrætum um sambandið við Dani. Sjá og 1914.

Í heimsstyrjöldinni gleymist ríkisráðsákvæðið og stjórnmálamenn taka að deila um lausn vandamála sem hún hefur í för með sér - sjá Landsverslun 1917.

Þegar nú öld er liðin síðan Henderson og Rask, kenndu einstaklingshyggjuþjóðinni að starfa saman í félagi sem ekki þurfti á óvini að halda (1815, 1816) var Jónas Jónsson frá Hriflu hvatamaður að því að stofnaðir voru tveir stjórnmálaflokkar: Framsóknarflokk mynduðu 8 þingmenn úr bændastétt um haustið,
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

en ASÍ stofnað 12. mars, sem var eitt og hið sama og Alþýðuflokkur til 1940. Stofnfélagar ASÍ voru 7 verkalýðsfélög í Reykjavík og Hafnarfirði með um 650 félagsmönnum.

Snorri G. Bergsson, Roðinn í austri, bls. 37: ,,...stofnendur flestir voru svokallaðir ,,miðstéttarmenn" sem vildu ... stjórna og hafa vit fyrir verkalýðnum. Jafnframt vildu sumir þeirra einnig brjótast til áhrifa í landsmálapólitíkinni og höfðu það lokatakmark að koma hér á sósíalistastjórn".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Í útvarpsviðtali 25. sept. 2018 varpaði höfundur ævisögu Jónasar, Guðjón Friðriksson, þeirri spurningu fram, hvort það hafi ekki verið af ótta við Jónas að andstæðingar samvinnu- og félagshyggju sameinuðust í flokki einstaklingshyggju 8 árum síðar. Þeir reyndust þá bæði félagslyndari og samvinnuþýðari enda verður vart tölu á komið hve oft a.m.k. Alþýðuflokkurinn hefur klofnað frá og með 1922 undir formerkjum (sam)einingar.

FréttDV (opnast í nýjum flipa)

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Um ástandið á 19. öld á þetta við:
Lúðvík Kristjánsson, Vestlendingar I, 37: ,, ... gildi félagshyggju lá Íslendingum í léttu rúmi. Útúrboruháttur og samtakaleysi grúfði sem skuggi yfir hverri sveit. ... Öll félagsleg mök utan heimilisins máttu heita Íslendingum framandi".
Síðan vitnar Lúðvík í sr. Ólaf Sívertsen í Flatey: ,,Það mun ei lítið hafa hnekkt framförum Íslendinga, hve skammsýnir, ragir og tortryggnir þeir hafa oft verið til samtaka í þarflegum fyrirtækjum".

Indriði G. Þorsteinsson, Samtöl við Jónas, bls. 36: ,,Ég (Jónas Jónsson) vann að því að gera tvo flokka. ...Þeir þurftu að koma fram samtímis. Þessir flokkar áttu að vera skipaðir tveimur stéttum, bændum og sveitafólki annars vegar og verkamönnum og sjómönnum hins vegar".
Í Íslands sögu II, bls. 23, fjallar Einar Laxness um þetta mál.

Í ,,Þegar siðmenningn fór fjandans til", bls. 202, bendir Gunnar Þór Bjarnason á að ekki sé tilviljun að nefndir flokkar skyldu stofnaðir 1916 eftir mikil átök á þingi 1915 þar sem dreifbýlisþingmenn felldu frumvarp Sveins Björnssonar um dýrtíðarhjálp til handa fátækum sem fjármögnuð skyldi með ófriðarskatti á útfluttar landbúnaðarvörur og fisk, sem stórhækkað höfðu í verði í stríðinu.

Einar Olgeirsson, Kraftaverk einnar kynslóðar, bls. 64: ,,Hann (Jónas frá Hriflu) telur að upp þurfi að rísa borgaraflokkur til hægri, verkalýðsflokkur til vinstri og bændaflokkur, sem hann kallar vinstriflokk, í miðið, en með þessari skipun eigi bændaflokkurinn að geta haldið völdum í samstarfi við hina flokkana á víxl, og þess vegna lagði hann fram lið sitt við stofnun Alþýðusambandsins / Alþýðuflokksins”.
Bls. 138: ,,Hugmynd hans var að gera bændastéttina að forystustétt þjóðfélagsins og nota verkalýðshreyfinguna sem hjástoð ...En straumur tímans gekk í öfuga átt ...Fólkið streymdi eins og þung elfur úr sveitunum til bæjanna".

Um 1928, þegar Íhaldsflokkurinn er kominn til sögu, telur Halldór Laxness bág kjör öreiganna orsakast af sjálfskipaðri einstaklingshyggju fremur en arðráni ríkjandi stéttar. (Sigurður Hróarsson ,,Eina jörð veit ég eystra", 17).

Guðmundur Magnússon nefnir auk þess í ,,Thorsurunum", bls. 199-203, hug Jónasar til togaraútgerðar, sem birtist þegar hann vill niðurlægja Richard Thors með því að kalla hann ,,fisksala". En þegar Sjálfstæðismaður gerði lítið úr starfsheitinu ,,fjósamaður", rauk hann upp og skrifaði að þetta væri hreinlátt og virðulegt starf".

Ári síðar byrjar bylting Lenins í Rússlandi hvers ,,stefna var að útrýma bændum sem stétt" og var gert 1930, (Arnór Hannibalsson, Moskvulínan, bls. 45). Íslenskir kommúnistar sniðgengu alþingishátíðina það ár, en gáfu rússnesnum bændum dráttarvél árið sem Stalín útrýmdi þeim að sögn Arnórs Hannibalssonar. Sjá 1930.

Ungt fólk sem ekki fýsti í fleiri tilgangslausar styrjaldir hreifst af því sem var að gerast í Rússlandi. Þetta má skýra bæði afstöðu Jónasar Jónssonar og ASÍ til kommúnista sem og svæsnar illdeilur þeirra í milli á næstu áratugumn. (Tilvísun: Moskvulínan, bls. 20).

,,...lífseigar voru áhyggjur af því að iðnvæðing og þéttbýlismyndun ógnuðu stöðu sveitanna. (Alþýðu)Flokkurinn tók því þátt í því að viðhalda hugmyndum um að þéttbýlisbúar væru annars flokks þegnar ...Flokkurinn hikaði þannig við að slíta naflastrenginn við Framsóknarflokkinn". (Ragnheiður Kristjánsdóttir, Nýtt fólk, 331.)

Þorleifur Friðriksson segir efnislega á bls. 116 í ,,Undirheimar", að á meðan Alþýðusambandið og Alþýðuflokkurinn var eitt og hið sama hafi ASÍ ekki þurft að óttast aðför úr eigin röðum en getað einbeitt sér að uppgjöri við borgaralega flokka.
Kommúnistar komu til sögu um fimm árum síðar og Íhaldsflokkurinn 1924, Sjálfstæðisflokkurinn 1929. Eftir 1940 gátu allir flokkar komið sínum mönnum inn í stjórn ASÍ og náðu kommúnistar jafnvel meirihlutavaldi þar 1944, þegar Sjálfstæðisflokkurinn studdi sósíalistann, Hermann Guðmundsson, til formennsku. Fall Vinstristjórnar ABG 1958 varð þegar sjálfstæðismenn gerðu bandalag við óánægða Alþýðubandalagsmenn á ASÍ-þingi sem hafnaði erindi forsætisráðherra um aðgerðir gegn verðbólgu. Óánægja þeirra spratt þó af vanefndaum á brottför hersins, en hann fór af sálfsdáðum um hálfri öld síðar, 2006!

Saga ASÍ í 5 þáttum sem finnast með því að skrolla niður:
Vefurasi.is (opnast í nýjum flipa)

Í Íslensk þjóðfélagsþróun 1880-1990, bls. 336, segir Gunnar Helgi Kristinsson, að Jón Þorláksson, þá einn af leiðtogum Heimastjórnarflokksins, hafi 1916 bent á að gömlu flokkarnir væru of sundurlausir til að geta mótað stefnu í þeim úrlausnarefnum sem sem af styrjöldinni hlutust: stjórnmálin persónuleg og ómálefnaleg. 5 árum síðar hafi Jónas bent á þá lausn að stækka kjördæmin og beita hlutfallskosningu (bls. 337) sem varð að veruleika á fjórða áratugnum með flokksfélögum utan þingsins. ,,Sigur Jónasar í þeim átökum kostaði klofning Framsóknarflokksins 1933". En Jónas náði aldrei fullum tökum á þingflokki Framsóknar sem reyndist áfram vera megin valdamiðstöðin í flokknum. Hann varð því einangraðri og á endanum ýtt úr formannsstólnum,1945.

Í ævisögu, Stelpan frá Stokkseyri, bls. 198, lýsir Margrét Frímannsdóttir, sem 1995 sigraði Steingrím J. Sigfússon í formannskjöri Alþýðubandalagsins, því hvernig hún var ,,hunsuð á þingflokksfundum".

Blessuð sértu sveitin mín: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Kór Rauða hersins syngur Nallann: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Atvinnurekendur syngja ,,NALLANN":
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Framsóknarflokkurinn:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1916

  • Í Íslandssögu áður stóð
  • Jónas jók Jónasi frægð
  • Í Hásetaverkfalli var ei kjurt
  • Fellsstrendinga fýsti sjá
  • Hafði ei Dalaskáldið skjá
← 1915Heiðarlegir Húnvetningar1916 →Í Íslandssögu áður stóð