Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1916
1916
1916

Jónas jók Jónasi frægð

JJónas jók Jónasi frægðjafningja ætti sér fáen Odds mætti, lögmanns, í lægðliggja í gleymsku og dá.

Í okkar sögu áður stóðað við værum dugleg, fróðstæðum saman, gáfuð, góðGuðs útvalin þjóð.

Glúmur Gylfason · 1916

Heimildir og samhengi

Meistari Þórbergur hafði eftir séra Árna Þórarinssyni að Snæfellingar væru snillingar í að ljúga með þögninni.
Um sr. Árna segir fv. sóknarbarn hans, séra Sigurður Pálsson 1961 við Guðmund Daníelsson, skáld í,,Þjóð í önn", bls. 234, að hann - sr. Árni - væri fyrst og fremst skáld, og heldur svo áfram, og er þá væntanlega að tala um sagnfræði þess tíma, sem gilti til u.þ.b. 1985: ,,Venjuleg sagnfræði. sem svo er nefnd, er yfirleitt ekki nema hálfur sannleikur, ef hún er þá ekki ósönn með öllu. ... Nú er ég að segja yður hvað ég álít í fullri alvöru".

Íslandssaga Jónasar Jónssonar, útg. 1916, lítur framhjá lm. Oddi Sigurðssyni, (1681-1741), sem var sá einstaklingur sem hvað mest fór fyrir á fyrsta þriðjungi 18. aldar og var falið stiftamtmannsvald í áratug, sem þá öld allt til 1790 var einstakt að Íslendingur færi með, en þá tók lítið betra við. (Sjá 1804, 1806).
Jónas leitaði að jákvæðu í fari landa sinna og gat þess sem glætt gæti þjóðarstoltið svo sem nafni hans Hallgrímsson.
Á þessari síðu er Odds getið u.þ.b. árlega 1695 til 1741.
Mynd Þjóðleikhússins ,,af honum" hér að neðan og við 1725.

Um fræknleik Íslendinga er Njáluhöfundur sammála Jónasi frá Hriflu. Próf. Árni Magnússon (1663-1730) segir (efnislega) um Íslendingasögur að í þeim séu Íslendingar upphafnir á heimskulegasta hátt og þeirra kostir, eins og þeir væri öllum þjóðum fremri. Framar öðrum hefur Njáluhöfundur verið blygðunarlaus þar í mörgum stöðum - (utanför Hrúts, Gunnars og Þráins telur Einar Ólafur Sveinsson, bls.155 í Njálsbúð).

Á söguslóðum, bls. 31, gagnrýnir Helgi Þorláksson að þjóðernishyggjuleg ,,söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar" lifi enn góðu lífi í skjóli hins opinbera, en um 60 ár séu síðan að háskólamenntaðir sagnfræðingar tóku að gagnrýna hana.
Sá sem hér skrifar finnur til sektar. Hann var nefnilega í síðasta árgangi kennara sem nutu til 1964 kennslu frábærs sögukennara Kennaraskólans, sem það ár lét af störfum sjötugur. Sá var tvítugur 1916 þegar kennslubók Jónasar Jónssonar kom út.
Til ársins 2014 hafa því grunnskólakennarar ,,í skjóli hins opinbera" kennt þjóðrembingslega söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar hvað sem háskólamenntuðum sagnfræðingum leið.
Rætist þá II. Mósebók, 34, 7: ,,...afbrot feðranna bitna á börnum og barnabörnum í þriðja og fjórða lið“.

Helgi Þorláksson nefnir á bls. 28 í Á söguslóðum, Magnús Má Lárusson fyrstan, 1968, sem hvetji til þess að söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar verði endurskoðuð.
Um miðjan 9. áratuginn komu síðan út háskólaritgerðir sem það gerðu. Í þær ritgerðir er gjarnan vitnað á þessari síðu, en höfundar voru Harald Gustafsson í Lundi og okkar Gísli Gunnarsson. Sjá enn fremur eftirfarandi slóð: AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Bergsveinn Birgisson, Leitin að svarta víkingnum, bls. 232: ,,Sérhver þjóð gerir sér mynd af uppruna sínum, byggða á hugmyndum, sögulegum viðburðum og frásögnum. ...Þetta snýst um það hver okkur langar til að vera. Söguritun varpar ljósi á þá þætti sem passa, en skugga á aðra. Í íslensku upphafsmýtunni er dregin upp mynd af hinu ...upprunalega Íslandi sem jafningjasamfélagi. ...(en) Orri Vésteinsson telur að fáeinir mjög voldugtir stórbændur hafi ráðið yfir allt að þrjú þúsund undirsátum, semsé hagkerfi fyrir hina fáu útvöldu. Landnámsmenn tóku ættarveldi stórhöfðingja með sér frá Noregi. ...hinir lærðu menn hámiðalda hafa (í Landnámu) ekki áhuga á að segja frá Geirmundi heljarskinn. Það féll ekki að jafningjamýtunni Hann var víkingur ...ríkti yfir mörgum norrænum mönnum...stórtækur innflytjandi írskra þræla og skúrkur ...(sem) á rætur að rekja til framandi þjóðflokks í norðri, sá svarti og ljóti maður".
Síðan segist Bergsveinn skilja vel að sagnaritarar vilji ekki sýna þjóðina grundvallaða á: ,,græðgi, ofveiði, rányrkju, og þrælahaldi" (Geirmundar).
Á bls. 229 segir eftir Landnámu að Geirmundur hafi haft 80 (vopnaða) frelsingja (til að hemja um 1.600 þræla). Á bls. 277-8 að 60 verði þurfi til að gæta 100 þræla í í bækistöð.

Löngum vorum við stolt af Agli vegna sjálfshóls hans af svona afrekum:
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

En frá 1916 til ~1984 - sbr. ofansagt - skyldi ekki misbjóða heiðri Landsins.

Sjá enn fremur hvernig virðingu Landsins var misboðð: 1898 og 1905.

Katrín Kristinsdóttir, kennari, segir í ,,Íslenska söguþingið 1997, bls. 42, að Jónas Jónsson greini í Íslandssögu sinni aðeins frá einni hlið málsins og liggi ekki á skoðun sinni.

Bróðursonur Jónasar Jónssonar, Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi ritaði bókina Söguþjóðin í þeim tilgangi að rétta af þjóðrembinginn í Íslandssögu frænda síns. Hann segir í formála ,, ...Í baráttunni fyrir frelsi landsins hentaði vel að kenna útlendum valdsmönnum um bölið og eymdina sem yfir okkur gekk ... En nú þarf ekki lengur að skrifa svona þjóðleg áróðursrit ... það var ekki erlend áþján, heldur eldgos og hafísar hallæri og farsóttir sem drápu Íslendinga á fyrri öldum".

,,Die Überhöhung der eigenen Nation führte immer häufiger zur aggressiven und hasserfüllten Ausgränsung jener die nicht Teil von ihr waren. In den USA erreichte das Lynching (aftökur án dóms og laga) einen Höhepunkt, die Schwarzen wurden wieder fast vollständig politisch entrechtet (réttlausir), in Deutschland, Osteuropa un Frankreich stieg der Antisemitismus, es war das Zeitalter der Imperialismus und der Nationalismus".

Vefurspiegel.de (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1916

  • Kúgildi falla kóngsins dauð
  • Í Íslandssögu áður stóð
  • Í Hásetaverkfalli var ei kjurt
  • Fellsstrendinga fýsti sjá
  • Hafði ei Dalaskáldið skjá
← 1916Í Íslandssögu áður stóð1916 →Í Hásetaverkfalli var ei kjurt