Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1919
1919
1919

Svörtum fjöðrum flugið tók

Hljóðbrot0:00

Lag Hani, krummi, hundur, svín

SSvörtum fjöðrum flugið tókFagraskógar-Versisaltaðri meðan í sjóinn óksíldinni Íslands-Bersi.

Glúmur Gylfason · 1919

Heimildir og samhengi

Út komu ,,Svartar fjaðrir”, ljóð Davíðs Stefánssonar (1895-1964) frá Fagraskógi.
Vefurfararheill.is (opnast í nýjum flipa)
,,Síldarkrakkið mikla” eftir góða vertíð og mikinn afla Norðmanna hér við land, en síldarspekúlantar áttuðu sig ekki á nýjum aðstæðum við stríðslok, lækkuðu ekki verð og sátu uppi með síldina. Talið að ónýtri síld fyrir eina milljón kr. hafi verið ekið í sjóinn við Kaupmannahöfn eða sem áburður á akra.

Vefursild.is (opnast í nýjum flipa)
Árið 1920 voru brúttótekjur Reykjavíkur 2.200.000 kr. Íslandsbanki, sem lánaði mest til útgerðar, varð fyrir áfalli og bar ekki sitt barr eftir þetta og varð gjaldþrota 1930. Því voru sett lög 1922 sem bönnuðu útlendingum að leggja hér fisk á land.
Mynd af Íslandsbersa:Vefurcover.hbs.is (opnast í nýjum flipa)

Framfærsla varð þrisvar sinnum dýrari eftir fyrra stríð en áður. Framfærsluvísitala fór úr 108 stigum í okt. 1914 í 330 stig 1918 og 440 stig 1920. Kol hækkuðu tífalt. Meðalverð á lambakjöti fór úr 44 kr. niður í 27 kr. frá 1919 til 1921.

Jóhannes Helgi: Skálteigsstrákurinn Þorleifur Jónsson: ,,Þegar þeir gátu fengið 99 krónur fyrir tunnuna ...Óskar Halldórsson (Íslandsbersi) og fleiri, þá sögðu þeir nei, við viljum fá 100 krónur ..Étið hana þá sjálfir, sögðu viðsemjendur ...og þeir máttu borga tvær krónur per tunnu fyrir að láta aka sumarsíld Íslands sem skít á danska akra".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Guðmundur Magnússon, Thorsararnir, 118: ,,Um haustið gerðu sænskir síldarkaupmenn tilboð í síldina sem Kveldúlfur hafði látið salta. Upphæðin var talsvert lægri en útgerðarmenn vonuðust eftir. Haukur (Thors á Hjalteyri) sendi skeyti suður og sagðist mundu taka tilboðinu innan tiltekins tíma nema fyrirmæli kæmu um annað. Þau fyrirmæli (um að selja ekki) komu 20 mínútum of seint. Haukur var búinn að selja alla sumarsíldina. ...Allir síldarseljendur nema Kveldúlfur töpuðu stórfé og sumir urðu gjaldþrota".

Hannes Jónsson, kaupmaður, síðast á Laugavegi 28, fjallar þannig um 1919 í Endurminningum, bls. 132: ,,Þá var mikil síldveiði og verðið hátt, tilboð Svíanna komst í 96 krónur einn daginn, en þá vildi enginn selja, vildu fá 100 krónur. En daginn eftir kom ekkert boð og síldin varð ónýt. Bankarnir neyddu þó einn á Ísafirði til að selja, af því að þeim var illa við hann. Það bjargaði honum. Og Kveldúlfur losnaði við 30 þúsund tunnur af því að synjunarskeyti barst of seint frá þeim".

Bók Jóns M. Ívarssonar, Í skugga Gaulverjabæjar, birtir á bls. 344 viðtal sem Heimilispósturinn átti 1961 við höfuðpaurinn í verðbréfamisferlinu, sem kennt er við Gaulverjabæ, Björn Gíslason, (1878-1967), sjá hér 1915.
Þar segist Björn hafa verið staurblankur í Kaupmannahöfn í síldarverðhruninu 1919, og skuldað Sparisjóði Árnessýslu 120 þúsund krónur í víxlum, en heildartekjur Reykjavíkurbæjar voru þá 2.200.000 kr. Vissi þá af óseldri og ónýtir Íslandssíld í tunnum á Islandsbrygge sem aka átti sjóinn, en fékk leyfi til að hirða hana, bætti við pækli og seldi Pólverja ,,fyrir fjögur milljón pólsk mörk". Sparisjóðurinn fékk mörkin, en Björn víxlana. ,,...skömmu seinna sendu þeir mér mörkin aftur og sögðust ekki geta notað þau. ...Þeir á Eyrarbakka sögðu að þetta hefð verið helvítis svindl úr mér. ...Að vísu voru þau aldrei meira en 20 til 25 þúsund króna virði". Sparisjóðurinn varð gjaldþrota.

Aðrar heimildir og tilvísanir:
Erlingur Brynjólfsson: Baráttan við Fjallið, bls. 42.
Ásgeir Jakobsson: Óskars saga Halldórssonar – Íslandsbersi.
Halldór Laxness: Guðsgjafaþula.

Ásgeir Jakobsson: Einars saga Þorgilssonar, bls. 179;
Þorsteinn Matthíasson, Hrundar borgir, bls. 35;
Jóhannes Helgi: Skálteigsstrákurinn Þorleifur Jónsson I, bls. 54
Jón Þ. Þór: Saga Ísafjarðar III, bls. 64.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1919

  • Íhaldið sín áhrif jók
  • Með Botníu kom einn bolsjevík
  • Sýnist þýskri senu steli
← 1918Bændur hætta að færa frá1919 →Íhaldið sín áhrif jók