Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1919
1919
1919

Með Botníu kom einn bolsjevík

MMeð Botníu kom einn bolsjevíkog byrjaði að predíka´ í Reykjavíkhamar og sigðin síðan ríkí Sögueyjunnar pólitík.

Urðu að skjóta auðmenn, furstaað yrði ei bylting sundruðsovétóvini' og soddan rustasamtals nokkur hundruð.

Glúmur Gylfason · 1919

Heimildir og samhengi

Blaðið Dagsbrún, maí 1919: ,,Um daginn, þegar Botnía var að fara frá Kaupmannahöfnn fréttist að einn farþeganna væri Bolsivíki ...og urðu sumir mjög kvíðafullir".

Þessi ungi menntamaður bað Dagsbrún að hafa viðtal við sig, en óskað nafnleyndar af því að hann væri bolséviki. Í viðtalinu skýrði hann með dæmum hvernig bolsévisminn gæti numið land á Íslandi: Þeir ætluðu sér að láta alþýðuna taka alla stjórn og öll verðmæti í sínar hendur. Taldi þó óvíst að atvinnurekendur og athafnamenn yrðu látnir púla í kolum og saltfiski, en þeir yngri yrðu látnir vigta rúsínur, púðursykur og grænsápu, en þeir sem væru komnir á efri ár yrðu að mestu látnir í firði, en auður þeirra að sjálfsögðu gerður upptækur. Þessi mannúðlega meðferð yrði þó háð því skilyrði að þeir efndu ekki til samsæris gegn alþýðuvaldinu - þá yrðu þeir fluttir til Grímseyjar.

Þetta er úrdráttur úr doktorsritgerð Ragnheiðar Kristjánsdóttur, Nýtt fólk, bls. 171.
Hún segir neðanmáls líklegt að bolsinn hafi verði Hendrik Ottósson og hann þá þeirra fyrstur.

Meðal farþega frá Kaupmannahöfn með Botníu til Reykjavíkur 14. mars 1919 var Hendrik Ottósson - segir Snorri G. Bergsson, Roðinn í austri. bls. 51.

Aðrir hafa rakið upphaf kommúnista til komu þeirra Hendriks og Brynjólfs Bjarnasonar af 2. þingi Alþjóðasambands kommúnista, Komintern (Kommunistische Internationale), í Moskvu 1920. Leið þeirra lá um Pétursborg og hittu forseta Komintern, G. Zinovjev ,,sem taldi mestu hörmungarnar afstaðnar ... ,,en hinsvegar urðum við" sagði hann, ,,að skjóta nokkur hundruð manns, bankamenn auðmenn, fursta og herforingja".
(H. Ottósson: ,,Frá Hlíðarhúsum til Bjarmalands").

1928 heimilaði Komintern, þ.e., Alþjóðasamband kommúnista í Moskvu, að kommúnistar stofnuðu flokk á Íslandi, sem þó dróst til1930. Aðild þýddi skuldbinding til að hlýða Komintern í einu og öllu og var fastmótað í Moskvutesunum 21 frá 1920.
Sú 6: Kommúnistar skulu afhjúpa friðarhyggju og ÞJÓÐRÆKNI sósíaldemókrata.
11. Kommúnistaflokkar skulu reka ótraust fólk úr þingflokkum sínum.
13. Kommúnistaflokkar skulu öðru hverju hreinsa út smáborgaraleg öfl sem læðst hafa inn.

Á þessum tíma litu kommúnistar í allri evrópu á Rússland sem föðurland sitt sem og alls verkalýðs og var það andsvar við þeirri þjóðernisstefnu sem leitt hafði til heimsstyrjaldar sem nýlokið var.

Vefurfattiperlastoria.it (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1919

  • Svörtum fjöðrum flugið tók
  • Íhaldið sín áhrif jók
  • Sýnist þýskri senu steli
← 1919Íhaldið sín áhrif jók1919 →Sýnist þýskri senu steli