Landspróf miðskóla lækkar skör
Lag Kindur jarma í kofunum - Bj.Þ. 618
Landspróf miðskóla lækkar skörlítt á Miðnesheiði spörlauk við Þingvöll þjóðskálds förÞorpinu ýtir Jón úr (V)vör.
Heimildir og samhengi
Keflavíkursamningurinn gerður við USA 5. október.
Bandaríkin skyldu fá áframhaldandi afnot af Keflavíkurflugvelli næstu 5 ár.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Þá þótti sósíalistum (C) ,,orðið þröngt fyrir dyrum"* og sögðu sig úr Nýsköpunarstjórninni (A,D,C,).
Áður en það varð setti menntamálaráðherra, sósíalisti, ný fræðslulög sem stýrðu aðgengi að stúdentsnámi með samræmdu Landsprófi miðskóla.
Fjötranir rakna, bls. 301: Við lýðveldisstofnunina 1944 hafði rómantísk ættjarðarást blossað upp. ... 1955 kom í ljós að 48% landsmanna voru andvíg varnarsamningnum frá 1951, en 28% fylgjandi".
Jónas frá Hriflu vildi fremur efla verkmenntun og var lítill aðdáandi Landsprófs: Aldir og augnablik II, 188, útg. 1965: ,,Fram að óheillalögunum 1946 var gætt hófs með nemendafjölda í héraðsskólunum ...en á síðari árum eru margir héraðsskólar yfirfullir ...sem ítroðsluverksmiðjur til landsprófs".
Sr. Sigurjón Einarsson, Undir hamrastáli, 221: ,,Á stríðsárunum óx aðsókn að menntaskólunum jafnt og þétt. Það átti rætur að rekja til bætts efnahags alþýðu, þökk sé hernámsvinnu og auknum afla".
Um 150 náðu tilskilinni einkunn, 6,0, til menntaskólanáms það ár frá gagnfræðaskólum, en nú tóku héraðsskólar að kenna til Landsprófs. Áður háðu nemendur samkeppnispróf um menntaskólavist. Til stúdentprófs kenndu tveir skólar til 1801, þá einn til 1930, þá tveir, en 1953 urðu þeir þrír.
Einar Laxness, Íslands saga II, 154: ,,Þegar nemendafjöldi jókst 1920-1930, og komst upp í 200, ákvað kennslumálastjórn 1928, að frumkvæði Jónasar Jónssonar, menntamálaráðherra, að takmarka inngöngu í 1. bekk við 25 hæstu á inntökuprófi (síðar 29-32), svo að fjöldi námsmanna varð frá að hverfa".
Sérstök Landsprófsdeild miðskóla starfaði í Iðnaðarmannahúsinu við Lækjagötu í Reykjavík, sbr. mynd.
Eftir sögulegt ferðalag úr Hjástoðarkirkjugarði í Kaupmannahöfn til Reykjavíkur og þaðan um Hörgárdal til Þingvalla eru ætluð bein Jónasar Hallgrímssonar (1807-1845) loks grafin þar í heiðursreit við hlið annars skálds, Einars Benediktssonar, sem þó hafði fyrr verið vísað frá Valhöll á Þingvöllum vegna förunautar síns, Bakkusar, sem hafði verið trúr báðum skáldunum allt þar til dauðinn að skildi.
Aðrar tilvísanir:
*Einar Þveræingur Eyjólfsson á Alþingi 1020.
Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson, III, bls. 310.
Texti Jónasar um legstaðinn:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Halldór Laxness um legstaðinn í Fegurð himinsins, 9. kafla: ,,...fékk Pétur Þríhross (Jónas frá Hriflu) aftur guðlega opinberun, og nú um að þessi gamli aftökustaður glæpamanna skyldi kallast helgur staður og þar skyldu mikilmenni Sviðinsvíkur liggja grafin".
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)
Út kom ,,Þorpið", ljóðabók Jóns úr Vör Jónssonar (1917-2000). Hann var ættaður frá Patreksfirði (Þorpinu).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Um ,,atómskáldið" Jón úr Vör, sjá Jón Óskar: Fundnir snillingar, bls. 158:
Jón Óskar segir hugtakið atómskáld verða til 1947 með Atómstöð Halldórs Laxness.
Hraundrangi:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Patreksfjörður: Vefurguide.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Reykjavíkurflugvöllur afhentur Íslendingum:
Vefurislandpaafilm.dk (opnast í nýjum flipa)