Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1946
1946
1946

Kommar réðust á Bjarna Ben

KKommar réðust á Bjarna Benborgarstjóra við AusturvöllThorsara´og Gunnar Thoroddsentuktuðu´og unnu á húsi spjöll.

Glúmur Gylfason · 1946

Heimildir og samhengi

Eftir mótmælafund gegn Keflavíkursamningnum ... ,,22. september skundaði um 400 manna hópur sósíalista niður að Sjálfstæðishúsi við Austurvöll þar sem sjálfstæðismenn sátu á rökstólum ... á annað hundrað sósíalistar ruddust inn í fundarsalinn, gerðu háreysti, sungu ættjarðarsöngva og hröktu Gunnar Thoroddsen úr ræðustól ... sósíalistar hindruðu störf fundarins í hálfan annan tíma ... að fundi loknum veittist hópur sósíalista að Bjarna Benediktssyni, borgarstjóra ... og gerði sig líklegan til að ráðast að Ólafi (Thors) og Gunnari. Lögreglan kom hins vegar í vega fyrir að forystumenn Sjálfstæðisflokksins yrðu fyrir meiðslum með því að koma Bjarna aftur inn í Sjálfstæðishúsið og Ólafi og Gunnari inn í Landsímahúsið. Sósíalistar hófu í kjölfarið grjótkast á Sjálfstæðishúsið og brutu rúður". (Skafti Ingimarsson ,,Saga kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar á Íslandi 1918-1968, bls. 180).

Myndir

Einnig frá árinu 1946

  • Landspróf miðskóla lækkar skör
← 1946Landspróf miðskóla lækkar skör1947 →Heklu þótti heitur skór