Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1947
1947
1947

Heklu þótti heitur skór

Hljóðbrot0:00

Lag Allt fram streymir endalaust

HHeklu þótti heitur skórað hæli sínum kreppa.Hér ei lengur tefur Thor.Troðist um hvern jeppa.

Glúmur Gylfason · 1947

Heimildir og samhengi


Stórt Heklugos byrjaði að morgni 29. mars, sem var laugardagurinn fyrir pálmasunnudag. Var það eftir 102ja ára hlé, sem var það lengsta milli gosa í Heklu frá hinu fyrsta, sem annálar geta um, 1104. Gosið stóð fram í apríl 1948. Gosstrókurinn stóð í fyrstu upp úr hátindi fjallsins og náði á tæpum tveimur klukkustundum í 26 km hæð. Vindstaðan var þannig að vikur barst mest yfir óbyggt landsvæði skemmstu leið á haf út. Þó féll talsvert niður á efstu bæi við Eystri-Rangá, Inn-Fljótshlíð og nokkuð við Eyjafjöll. 4 km löng gjá opnaðist eftir endilöngum háhrygg Heklu. Drunurnar heyrðust um mikinn hluta landsins og hárfínt öskuduft barst allt til Finnlands. Í högum Næfurholts streymdu banvænar lofttegundir upp úr hraunlægðum. Drápust þar 15 kindur, ein tófa og fjöldi fugla. (Heimild: Guðmundur Kjartansson í Íslenskar úrvalsgreinar II, bls. 33).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefurfilmcentralen.dk (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Jeppaleyfi:
SkjalAlþingi (opnast í nýjum flipa)

Nýbyggingarráð auglýsir efst á bls. 3, þ.e., hægri síðan.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

+ Thor Jensen, f. 3. des. 1863, á Frederiksberg, þá úthverfi í Kaupmannahöfn, fór 10 ára að heiman fyrir fullt og allt, kom sem nýfermt barn til Borðeyrar í apríl 1878, einstæðingur og litinn lengi ævinnar óhýru auga sem aðskotadýr þar í ókunnu landi, en varð forríkur útgerðar- og kaupmaður og bóndi. (1907, 1915, 1925, 1937). Átti íslenska konu, Margréti Þorbjörgu Kristjánsdóttur sem kom ekki í veg fyri að (pólitískir) andstæðingar hefðu syni þeirra í háði fyrir erlendan uppruna að þjóðrembuhætti þess tíma. (Sjá um Thor Jensen ,,arftaka einokunarkaupmanna" 1937).
Ævisögu Thors ritaði Valtýr Stefánsson, útg. Bókfellsútgáfan 1954.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hekla:

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Pólitískt skipuð nefnd, Nýbyggingarráð, úthlutaði jeppaleyfum. Í ,,Baðstofuhjali Tímans" 28. febrúar 1947 á bls. 3, segir að nefndarmenn skipti með sér kvótanum og deili síðan leyfunum út hver fyrir sig og þá til sinna (flokks)manna, sem sumir séu þó ekki bændur svo sem tilskilið sé.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Hannes Jónsson, Endurminningar, bls. 159: ,,Svo var það Nýbyggingarráð. Ég þurfti að útvega íhaldsheimili í Þingeyjarsýslu jeppa. Það leit heldur illa út, en leystist eins og skot þegar ég hafði vit á að nefna nafn Jónasar frá Hriflu. Og ég fékk líka vörubíl þangað norður".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1947

  • Látrabændur brast ei ráð
  • Í Reykjavík haldin var Septembersýning
← 1946Kommar réðust á Bjarna Ben1947 →Látrabændur brast ei ráð