Í Reykjavík haldin var Septembersýning
Í Reykjavík haldin var Septembersýningsöguleg þótti en gagnrýniverðskynfærum ögrað og augunum píningörfáir vissu hvað hér var á ferð.
Heimildir og samhengi
Samsýning myndlistarmanna er sýndu óhlutlæg verk sem vöktu hörð viðbrögð og gripu ýmsir pennann.
Einn þeirra, Guðmundur G. Hagalín rithöfundur, vissi t.d. hvers vegna ,,listamennirnir kusu að blekkja sjálfa sig með þessum hætti" og nefnir til þess fjórar ástæður:
1. ,,Þægileg leið fyrir þá sem enga hæfileika hafa, en vilja gefa í skyn að þeir hafi þá".
2. ,,Listamenn sem hafa hæfileika, en hafa ekki þroskað persónuleika sinn".
3. ,,...útrás fyrir sýndarmennsku".
4. ,,...allþroskaðir listamenn sem eru í andstöðu við lífið og þjóðfélagið, sem afneita fyrri list sinni og fá útrás fyrir reiði sína í þessum verkum". (Sjá og 1942, Háðungarsýningu Jónasar frá Hriflu).
Heimild:Skjallistasafnreykjavikur.is (opnast í nýjum flipa)
Þetta ár og næsta er Sigurður Jónsson frá Brún ,,Einn á ferð og oftast ríðandi". Hann skrifar á bls. 101: ,,Komumst við að Skútustöðum ... til þess mest að skoða landslag sveitarinnar. Er það sem kunnugt er mesta undraland, víðsýnt og leitótt, hrjóstrugt og frjósamlegt, öfgafullt og furðulegt eins og Septembersýning, en miklu fegurra og listrænna."