Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1850
1850
1850

Í Sveinbjarnar Hallgríms gómi gustar,

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

ÍÍ Sveinbjarnar Hallgríms gómi gustar,geysivandi:Á Ásmund Jónsson enginn hlustarógeispandi".

Glúmur Gylfason · 1850

Heimildir og samhengi

Sr. Ásmundur Jónsson (1808-1880), dómkirkjuprestur, var kvæntur systurdóttur am. Gríms Jónssonar og kærði Norðurreiðarmenn 1849 fyrir stiptamtmanni.

Sveinbjörn Hallgrímsson (1814-1863) ritstjóri Þjóðólfs las upp mótmæli eftir messu 10. febrúar 1850 og kvartaði undan óskýrmæli séra Ásmundar. (1859).

Þórir Stephensen: Dómkirkjan Reykjavík, bls. 220: ,,Sr. Sveinbjörn hugðist fylgja málinu eftir í blaði sínu, en þá bönnuðu stiftsyfirvöldin að það yrði prentað í Landsprentsmiðjunni. Fór Sveinbjörn því með eitt eintak af blaðinu til Kaupmannahafnar þar sem það var prentað undir nafninu Hljóðólfur".
Prentfrelsi fengu Danir með stjórnarskránni - grundloven - 5. júní 1849. Íslendingurinn Brynjólfur Pétursson var einn níumenninganna sem skrána sömdu. Á þjóðfundinum í Reykjavík 1851 ,,mótmæltum vér allir" og samþykktum því ekki þá skrá.
Prentfrelsi varð komið á í Bandaríkjum Norður-Ameríku 1791.

1854 varð sr. Ásmundur aftur prestur í Odda þar sem hann hafði áður verið 1836-47. Atvik voru þau, að Oddapresturinn, Markús, bróðir Ásmundar, féll af hestbaki og lést það ár. Þeir voru synir Jóns lektors Jónssonar á Bessastöðum og báðir fyrirmyndarnámsmenn.

Tilvísun: Aðalgeir Kristjánsson, Nú heilsa þér á Hafnarslóð.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttFréttablaðið (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1850

  • Rektor lítils mjöðinn mat
  • Margt fleira samdi en Mann og konu
  • Stúlkur erfi strákum jafnt
← 1849Ei fraus Þórði í æðum blóð1850 →Rektor lítils mjöðinn mat