Stúlkur erfi strákum jafnt
Lag Angri sáru yfir slær - Bj.Þ. 827
Stúlkur erfi strákum jafntað standi ei fæti höllumen skulu ekki í skóla samt,því skóli er handa köllum.
Heimildir og samhengi
Tilskipun jafnar erfðarétt kynjanna á Íslandi, en áður erfðu dætur helming á við bræður sína.
Þetta jafnrétti barna, sem m.a. afnam forréttinda elsta sonar, er rakið til ,,Code civil", þ.e. ríkisréttarlaga sem Napoleon Bonaparte kom á og tóku gildi 21. mars 1804. Nefnd hafði haft þau fjögur ár í smíðum og skyldu gilda á þeim svæðum sem Frakkar réðu. Fleiri réttarbætur með Code civil má fina í leitarvélum.
Heimild: Der spiegel - Geschichte 1/2021, bls. 65.
Séra Friðrik Eggerz fer hörðum orðum um þessa nýlundu í ævisögu sinni, „Úr fylgsnum fyrri aldar“.
Enn verða konur þó að fá samþykki föður fyrir hjúskap, en bróður, ef faðir er látinn, en það breyttist að lögum 1861, sjá þar.
1904 sett lög um jafnan rétt stúlkna til setu í Lærðaskóla.1910varð stúlka stúdent eftir setu í skólanum.