Skagabændur kóngsins korni
Lag Langt fyrir utan ystu skóga
Skagabændur kóngsins kornikasta máttu í djúpið svartþeygi annars þeir að morgniþurft hefðu að skýra margt.
Heimildir og samhengi
Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar, Úrdráttur:
Að ósk sýslumanns, Kristjáns Kristjánssonar, og amtmanns, sendi stjórnin 600 tunnur korns leigulaust með haustskipi til Hofsóss.
8 bændur af Reykjaströnd reru á sexæringi 3. desember og sóttu hlut hreppsbúa. Rennt var í staup við krambúðardiskinn. Nú áttu öll fátæk heimili von á mjölhnefa fyrir jólin. Brottför dróst – allir þurftu að spjalla. Veður fór mjög harðnandi. Stefndu á Ingveldarstaði þótt öskrandi brim myndi komið þar, stóðu í austri og höfðu ekki við. Báturinn var að sökkva. Urðu að grípa til þess ráðs sem öllum þótti þyngra en tárum taki: varpa lífsbjörginni í sjóinn. Skyndilega lentu þeir í brimfossandi boðaföllum og urðu að hleypa upp í brimskaflinn. Skipið varð á kafi í sjó, en slengdist upp í fjöru og enginn hafði losnað við það. Í frosti og óveðri náðu um síðir allir til bæjar, Innstalands, nema einn.
Eldri heimild, Gísli Konráðsson, Saga Skagastrandar og Skagamanna, bls. 194 segir tvo nafngreinda hafa orðið viðskila við hina og báðir orðð úti.
Reykjaströnd:
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)