Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1859
1859
1859

Frakkar kaþólskan kenna sið

Hljóðbrot0:00

Lag Guðs son kallar: komið til mín

FFrakkar kaþólskan kenna siðkaupa þar mátti sálu griðen meira skiptir sköpumþá Darwin tekur af dýrum miðað Danir mega - en fráleitt viðkomnir vera´ út af öpum.

Glúmur Gylfason · 1859

Heimildir og samhengi

Bernard Bernard og Jean-Baptiste Baudoin, franskir prestar, komu hingað 1857 og keyptu 1859 Landakot í Rvk. af séra Ásmundi (1850) Jónssyni, (1808-1880) fyrrum Dómkirkjupresti.

Farandsölumenn aflátsbréfa voru hér á ferð a.m.k. 1504 og 1513 og seldu 40 daga styttingu í hreinsunareldinum á 120 álnir, þ.e., kýrverð, og gilti jafnt fyrir lifandi og látna.

C. Darwin (1809-1882) kynnti verk sitt, ,,Um uppruna tegundanna” 1858 og hlýtur 1859 æðstu viðurkenningu Geological Society of London.

,,Danir fóru snemma á sjöunda áratugnum að fjalla um kenningu Darwins í tímaritsgreinum ...og í lok níunda áratugarins voru ýmsir þættir kenningarinnar orðnir viðteknir", segir Ingi Sigurðsson á bls. 293-4 i Erlendum straumum.

1893 ritar Jón Ólafsson ritstjóri: ,,Vor á meðal má segja að hávaði fólks veit svo sem ekkert um þessa kenning; jafnvel skólagengnir menn vita það eitt um hana, að einhver Darwin hafi komið upp með þá speki, að mennirnir væru komnir af apaköttum".

Eins og allir vita, þá eru Íslendingar komnir af Norðmönnum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1859

  • Skagabændur kóngsins korni
← 1859Skagabændur kóngsins korni1860 →Síðan ei á löngu leið