Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1860
1860
1860

Síðan ei á löngu leið

Hljóðbrot0:00

Lag Söngur Soffíu frænku (fussum svei)

SSíðan ei á löngu leiðuns Landakot var kærtog nýrra tíma betri beiðað biskup yrði værten kæran pat eitt, pot og bullþví páfi' er óskeikullsvo stjórnvöld södd sig fengu fullog Faðir vor sitt lært.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1860

Heimildir og samhengi

Skoðist sem framhald af 1859.
Kristni á Íslandi, 4. bindi, 54
: ,,Varúð ... viðhöfð þegar kaþólskir prestar komu hér laust fyrir 1860. Danska dómsmálaráðuneytið leyfði þá að þeir settust að til að annast franska sjómenn, sagði það í samræmi við danskt umburðarlyndi í trúmálum, en skilyrði var að þeir misnotuðu ekki stöðu sína til að leiða Íslendinga til kaþólskrar trúar". Prestarnir, nú tveir, boðuðu þó kaþólsku utan Reykjavíkur, t.d. í Eyjafirði og nýtti am. Pétur sér það til að ákæra gestgjafa þeirra, fjandmann sinn, Einar Ásmundsson í Nesi í Grýtubakkahreppi.
,,Eldur á Möðruvöllum" fjallar um þau málaferli á 10 blaðsíðum.

Frakkar breyttu gömlum skúr, sem stóð á Landakotslóðinni, í kapellu án leyfis, kærðir og sekir fundnir í lögreglurétti en sýknaðir í yfirrétti.
Bæjaryfirvöld iðraði þess að hafa ekki keypt Landakot 1859.

60 rúma spítala reistu kaþólskir í Landakoti 1902, fyrsta fullkomna sjúkrahús landsins og var kennslusjúkrahús til 1930 og notaði Alþingi þá, 1902, tækifærið og hætti við byggingu Landspítala, lagði niður starfsemi Sjúkrahúss Reykjavíkur í Þingholtsstræti 25 (Farsótt), en neitaði þó nunnunum bæði um fjárstyrk og lán og var þá safnað fé í Evrópu.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sést á samtímaumfjöllun í Öldinni okkar, 24, Wikipediu og Bærinn vaknar II, 37, að andað hefur köldu til systranna frönsku sem stóðu að framkvæmdum og rekstri Landakotsspítala.

Stefán Einarsson: Skáldaþing, bls. 295: ,,...þegar það kom til orða að byggja holdsveikum mönnum spítala á Íslandi, þá brá Jón (Sveinsson, Nonni) við og leitaði fjárframlaga hjá efnuðum mönnum víða um lönd. ...Söfnuðust inn um 30.000 frankar, en af því að það fé var ekki nægt, varð að fresta framkvæmdum. ...en fjársöfnun Jóns rann þá í sjóð þann er síðar var varið til Landakotsspítalans".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Stofnað var kaþólskt biskupsdæmi á Íslandi í nóvember 1918 og kennt við Reykjavík.
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
Sjá þó :Vefurlaeknabladid.is (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Páfaheimsóknin:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Messa:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1859Frakkar kaþólskan kenna sið1861 →Myndug hver ein kona kann