Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1861
1861
1861

Myndug hver ein kona kann

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

MMyndug hver ein kona kannkjósa maka að vildföður ei né bræðra bannog boð þarf taka gild.

Glúmur Gylfason · 1861

Heimildir og samhengi

1861 voru sett lög um myndugleika ógiftra kvenna frá 25 ára aldri.
Fyrr máttu konur á öllum aldri afla samþykkis föður eða bróður fyrir giftingu.
1921er allur vafi tekinn af um sjálfræði kvenna sem náð hafa giftingaraldri, sem var 18 ár. Þá var Alþingi hætt að löggilda danskar tilskipanir en komið með löggjafarvald, sem það ekki hafði 1861, og eftirfarandi sýnir að full þörf var á að tala skýrt:

Á bls. 114 í ævisögu Helgu Sörensdóttur eftir Jón Sigurðsson, Ystafelli, er fjallað um myndugleika foreldra á síðustu tugum 19. aldar.
,,Vald foreldra yfir uppkomnum og fullveðja börnum sínum var þá sökum aldarandans miklu sterkara en nú er ...margur bóndinn réð vesturför (Ameríku) án þess að ráðgast við uppkomin börn ...foreldrar vildu þá ráða giftingu barna sinna. ...Sumt ...gerði upprreisn, flúði til Ameríku og giftist þar. Hins voru líka dæmi að ungir menn færu vestur einir sér af því að stúlkurnar þeirra væru af þeim teknar og öðrum gefnar".

Um þetta stef fjalla skáldsögur Jóns Thoroddsen, ,,Piltur og stúlka" og ,,Maður og kona" enda honum málið skylt ef marka má síra Friðrik Eggerz, sem í ævisögu sinni ,,Úr fylgsnum fyrri aldar" segist hafa synjað honum um dóttur sína. Efir það átti hún - að sögn Friðriks - við geðræn vandamál að etja.
En margir telja séra Friðriki svipa mjög til séra Sigvalda í Manni og konu.
Heilum mannsaldri síðar, þegar lög þessi hafa gilt í 31 ár erum við, Íslendingar, enn við sama heygarðshornið ef marka má ,,Kærleiksheimili" Gests Pálssonar.

Eitt stefið í kvennaþrælkuninni var það, sem fram kemur í Þykkskinnu Helga Hannessonar, bls. 195, að feður (bændur) ráku biðla á braut þegar þeir þóttust ekki geta verið án (ókeypis) vinnukrafa þeirra.

Hannes Pétursson, Heimildarþættir lll, 62: ,,Jóhann (síðar á Brúnastöðum í Lýtingsstaðhreppi) reið (1865) til Guðlaugsstaða (í Blöndudal) í bónorðsför. Þar var auðugt bú. Þá hafði hann aldrei litið Elínu, (f. 1838, Guðmundsdóttur Arnljótssonar, hreppstjóra) segir sagan, en heyrt hennar getið. Hann kvað fyrst hafa ætlað sér systur hennar eina, en hún aftekið að játast honum. Eftir það á Jóhann að hafa beðið Guðmund bónda um hönd Elínar, sem einnig setti þvert nei fyrir, en var samt látin fara í vist, hvað sem tautaði og raulaði. Líklega hefur verið frá því gengið, að hún byggi svo sem árlangt undir sama þaki og vonbiðillinn, áður en giftamálin yrðu til lykta leidd. Elínu var skipað að hlýða. Þegar á þessu gekk var ungur vinnumaður í Blöndudal sem hún elskaði og vildi fá að eiga, en foreldrar hennar meinuðu henni það, því að maðurinn var fátækur.

Á bls. 148 í sömu bók er dæmi frá Kálfárdal í Gönguskörðum þar sem móður er stíað frá unnusta sem flýr til Ameríku með nýfætt barn þeirra vegna afskipta foreldra hennar 1887.

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Kristleifur Þorsteinsson: Úr Byggðum Borgarfjarðar, 286:

Séra Hjörtur Jónsson, Gilsbakka d. 1843, 67 ára. ,,Svo var það um Hjört, að hann hafði flest ráð sveitarinnar í hendi sinni. Einkum voru það þó einkamálin sem hann lét sig miklu varða. Rak hann persónur sundur og saman eftir geðþótta sínum og var tillögum hans hlýtt næstum takmarkalaust. Það er einnig athyglisvert, að út fyrir prestakallið fer naumast piltur eða stúlka að ná sér í maka í tíð séra Hjartar. Allt er parað saman innan sóknanna. ...Til sanninda um ofríki séra Hjartar í þessum efnum var mér sögð þessi saga:

Um þessar mundir voru vinnuhjú í Kalmannstungu hjá Jóni stúdent Árnasyni. Voru þau trúlofuð að ráði séra Hjartar. Þau hétu Elín og Gísli. Svo fór það að kvisast, að Elínu væri annar piltur kærari en Gísli. Prestur fréttir þetta og ríður að Kalmannstungu og er honum boðið í stofu. Lætur hann kalla Elínu fyrir sig og spyr: "Er það satt, að þú sért búin að svíkja Gísla Stígsson?" Elín svarar: ,,Satt er það." Prestur hélt þá yfir henni langa og harðorða ræðu þangað til Elín varð að lofa því að taka Gísla í sátt og giftast honum. Þetta sagði mér Kjartan Gíslason, sem þá átti líka heima í Kalmanns-tungu og var heyrnarvottur að samtalinu. Þessi afskiptasem séra Hjartar mun hafa verið skoðuð þá sem einn þáttur í embættisverkum hans.

Hjörtur var bóndasonu úr A-Landeyjum, lærði 6 ár hjá sr. Þorvaldi skáldi Böðvarssyni, Holti, tók stúdentspróf 1795 úr heimaskóla Gísla rektors Rvk.skóla fyrri, Thorlacius, og kenndi hjá honum í Rvk.-urskóla. Hann fylgdi Bjarna Bjarnasyni frá Sjöundá til aftöku í Noregi 1805. Ísl.æviskrár segja Hjört valmenni og vinsælan. Þá einkunn fær sr. Jón sonur hans, sem 13 árum eftir lát föður síns fékk loks, tveimur prestum síðar, Gilsbakka, en sóknarbörnin höfðu eindregið kosið að fá hann fyrr. Þau sóttust svo eftir heimsóknum hans og veittu vel, svo að hann endað sem drykkjusjúkur, en það þótti ekki tiltökumál á s.hl. 19. aldar.

Þrír synir sr. Jóns Hjartarsonar sem og dóttir urðu máttarstólpar Ísafjarðar á stórveldistíma þess kaupstaðar enda var móðir þeirra, Kristín, dóttir séra Þorvaldar Böðvarssonar: Grímur, guðfræðingur, en var kennari á Ísafirði, Þorvaldur, læknir þar og Árni, guðfræðingur að mennt, en forstöðumaður hinnar voldugu Ásgeirsverslunar á Ísafirði og víða getið. Dóttirin Þórunn giftist Þorvaldi, lækni á Ísafirði syni Jóns Guðmundssonar ritsjóra Þjóðólfs og Þjóðfundarfulltrúa 1851, sem frægt varð,- "sá halti".
Fjórði sonurinn var Hjörtur læknir í Stykkirhólmi, barnlaus með báðum konum sem voru þó sonardóttir Bjarna skálds Thorarensen og hin bróðurdóttir Jóns forseta.

Myndir

Einnig frá árinu 1861

  • Sýnist mörgum um forseta fátt
← 1860Síðan ei á löngu leið1861 →Sýnist mörgum um forseta fátt