Sýnist mörgum um forseta fátt
Lag Skaparinn stjarna
Sýnist mörgum um forseta fátter fjárkláðinn leikur bændur gráttum skurð eða lækningar lítil sáttlíta menn þar í hver sína átt.
Heimildir og samhengi
Aftur fór kláðanum að skjóta upp 1861. Hann hafði fyrst gert vart við sig 1855, þegar sr. Sigurður Thorarensen í Hraungerði (1865) flutti inn 4 hrúta frá Englandi, sem báru með sér kláðann. Byrjuðu sumir bændur að skera eins og gert var öld áður. Fyrir því fór nyrðra am. Pétur Havsteen og rénaði veikin á meðan kláðabaráttan stóð segir Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Eldur á Möðruvöllum bls. 522nn.
Í nóvember 1858 var afnumið vald amtmanna til að fylgja eigin stefnu í málinu. Lækning með endurteknu baði var fundin(?) en uppnámið slíkt, að illa varð við ráðið.
Oddgeir Stephensen, skrifstofustjóri í rentukammeri, sannfærði stjórnina 1859 um að enginn nema Jón Sigurðsson gæti komið viti fyrir bændur. Var þá veitt 30 þús. rd. til verkefnisins og sendir með Jóni margir dýralæknar til Íslands undir stjórn Jóns og C. Tscherning - yfirdýralæknis. Þeir böðuðu 47 þúsund kindur syðra og þá ,,var kláðinn úr sögunni sem alvarleg ógn”, sbr. m.a. Þórunni Erlu- Valdimarsdóttur: Heimtur, bls. 400, í grein, sem skýrir rétt Mýrdælinga til að vernda sauðalúsina, sem kemur fram í Ritsafni Eyjólfs Guðmundssonar bls. 58. Þeir munu hafa átt við ,,landnámslúsina”, sem landar hennar, ferfættir, höfðu viðnám gegn sem ekki gilti um innflutta lús.
Lækningabarátta Jóns kostaði hann forsetastólinn á alþingi og fékk á sig getsakir í nafnlausri grein í Norðra 1860 - hefði selt sig Dönum fyrir orðu.
Forseti í hans stað var kosinn Jón Guðmundsson ritstjóri Þjóðólfs. Sjá 1857.