Vistarbandsins bila tök
Lag Tíu litlir negrastrákar
Vistarbandsins bila tökbrátt og gefin laus.Karlaríkið verst í vökVilhelmína kaus.
Heimildir og samhengi
Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, 35: ,,Ný og frjálslegri lög um vinnufólk voru sett 1863 ...fólu í sér afturhvarf til vinnulöggjafar þeirrar sem ríkti fyrir árið 1783" og námu úr gildi húsagatilskipunina frá 1746.
Lausamennska leyfð þrítugum sem áttu eða höfðu 5 kýrverð í tekjur af fasteign. Aðrir gátu keypt sig lausa á eitt kýrverð og 1 rd. að auki – konur hálft kýrverð, þ.e. árskaup vinnufólks. Viðurlög voru 10 til 30 rd. sekt og leyfisbréf að auki (1839, 1874).
Skylduvistráðning var hagsmunamál bænda og stóð undir leigutekjum landeigenda. En þessa tilslökun gerði alþingi til að ná samkomulagi við stjórnina, sem vildi leysa vistarbandið alveg. (Sjá ritgerð Guðmundar Hálfdánarsonar, bls. 47 í Íslensk Þjóðfélagsþróun á 19. öld).
Þar, á bls. 50 kemur fram að íhaldssömum þjóðernissinnum fannst illla komið, alþingi yrði að fá lög- og fjárveitingarvald svo semja mætti lög um ,,samrækilegan húsaga, sem til einberra óheilla er nú orðinn niðurbældur af óguðræknis og innbyrðis offrelsisandanum" Norðanfari 1863.
Vistarbandið afnumið 1894, gert til þess að löglegt yrði að manna skútur og vegavinnuflokka. Jafnframt varð þá löglegt að vinna við hvalvinnslustöðvar Norðmanna, sem skilaði landinu járn- og blikksmiðum og vélstjórum.
Fjölgaði þá Akureyringum um helming til 1901 og tífalt til 1910, þá orðnir 2084;
Merking orðsins lausingi: léttúðugur / flakkari, vitnar um hvern hug bændafólk bar til óvistráðinna lausamanna. Enn í dag er danskur þingmaður sem kýs að starfa utan þingflokks kallaður lausamaður, - lösgænger.
Fyrstu bæjarstjórnarkosningar fóru nú fram á Akureyri.
Kusu 12, þar af ein kona: Vilhelmina Lever, (1802-1879), ýmist nefnd kaupkona eða borgarinnar. Minningarreitur er um hana á Akureyri. Sjá 1834.
Myndkonurogstjornmal.is (opnast í nýjum flipa)
Konur sem áttu með sig sjálfar hlutu þó fyrst atkvæðisrétt til hreppsnefndarkosninga 1881. Fyrst er vitað til að kona hafi kosið í bæjarstjórnarkosningu í Rykjavík 1888. Þá kaus Kristín Bjarnadóttir Hermannssonar, bónda á Vatnshorni í Skorradal, ekkja eftir Bjarna ríka Bjarnason, Esjubergi á Kjalrnesi. Kristín var þá flutt til dóttur sinnar, Ingibjargar og tengdasonar, Þorláks Ó. Johnsen, kaupmanns, sjá 1885 og 1917. (Ísl. æviskrár V 287).
Stjórnin lagði til að búlausir karlar sem greiddu 4 rd. í tíund mættu kjósa, en Alþingi hækkaði þröskuldinn um 50%, þ.e. í 6 rd.
Kosningarétt og kjörgengi höfðu embættismenn og jarðeigendur. Sr.
Sigurður Jónsson á Hrafnseyri gaf Jóni syni sínum 1845, litla bújörð, Gljúfurá í Arnarfirði, til þess að hann yrði kjörgengur.
Heimild m.a: Einar Laxness: Íslands saga III, 132.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)