Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1862
1862
1862

Hagyrðingur frá Heiði' af stað

HHagyrðingur frá Heiði' af staðhélt í skyndivirtist svo sem vissi hvaðverða myndi:

Glúmur Gylfason · 1862

Heimildir og samhengi

„Þó ég sökkvi í saltan mar
sú er rauna vörnin
ekki grætur ekkjan par
eða kveina börnin".

Séra Bjarni Þorsteinsson skráir á bls. 881 í þjóðlagasafni sínu:
Vísan er ort af Magnúsi Sigurðssyni hreppstjóra á Heiði í Gönguskörðum 12. mars 1862, daginn áður en hann drukknaði ásamt 10 mönnum öðrum af áttæringi Ásgeirs Einarssonar alþingismanns á Þingeyrum er gekk til hákarlaveiða frá Spákonufellshöfða".
(Það var Sigurður sem var fv. hreppstjóri).
Magnús var eins og fram kemur, ókvæntur og barnlaus.

Úrdráttur úr Skagstrendingasögu Gísla Konráðssonar, bls. 200:

Kona Sigurðar á Heiði og móðir Magnúsar var Helga Magnúsdóttir Árnasonar prests á Fagranesi á Reykjaströnd.
Magnús var ungur maður, fjörugur, manna hraðkvæðastur.

Þetta var í góubyrjun og fóru þá mörg önnur skip af Skagaströnd og Gjögri á Ströndum.
En sem þeir voru í legu komnir laugardagsnóttina fyrstu í góu 1862 rak á foraðsveður norðan með grimmdarfrosti og kafaldi. Urðu margir fyrir ærnum áföllum. Náðu þó Gjögrarar allir landi heilu og höldnu, en auk skips Magnúsar fórust 5 menn af sexæringi frá Höfða.

Myndir

Einnig frá árinu 1862

  • Aleinar helgidómsins dyr
← 1862Aleinar helgidómsins dyr1863 →Vistarbandsins bila tök