Æðri stéttar illur þjón
Lag Ef að mér til ununar - Bj.Þ. 828
Æðri stéttar illur þjónút af landi rækurþótti Ara í Ögri Jónekki á vetur tækur.
Heimildir og samhengi
Með Fjandafælu 1611:
(Jesú dreyra dauða og pín / sem dragi oss æ frá grandi / set eg á milli mín og þín / myrkra sterkur andi....)
og Snjáfjallavísum 1612:
(...ramma, skammar, rómgrimm / rjúki, strjúki, svo fjúki / í grunnið renni greyið senn / gleypist, sneypist og steypist.)
kvað Jón lærði Guðmundsson (1574-1658) niður Snjáfjalladrauginn, sem var séra Jón Þorleifsson, Stað, Snæfjallaströnd, sem hrapaði til bana og gekk aftur.
Jón tók málstað Baska gegn sm. Ara í Ögri (1615) með riti sínu: ,,Víg Spánverja í Æðey" og var eftir það á flótta innanlands og utan til 1637. Dæmdur útlægur á Bessastöðum 1631 og sá dómur staðfestur á þingi 1637.
Konungur linaði dóminn og fékk Jón friðland í Útmannasveit í Múlaþingi.
Fyrir að taka ,,málstað útlendinganna gegn villimannlegri meðferð landsmanna á þeim undir forystu Ara sýslumanns í Ögri" mátti Jón hrósa happi að vera hvorki brenndur fyrir galdur eins og tíðkaðist frá 1625 né strýktur til bana fyrir að móðga yfirvald, eins og alnafni hans á Klúku í Arnarfjarðardölum, sem móðgaði Selárdalsprest, Halldór Pálsson Björnssonar þar 1698.
Beina ræðan tilvitnaða er frá Óskari Halldórssyni: Bókmenntir á lærdómsöld, bls. 74.
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Hér er annar flótti:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
HeimildForlagið (opnast í nýjum flipa)
Vefursnerpa.is (opnast í nýjum flipa)
Sjá 1611, 1617.