Að Saurbæjarpresti berast bönd
Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ 830
Að Saurbæjarpresti berast böndbauð h'ann refum spísahrossakjöt á Hvalfjarðarströnden holdsveikraspítalar rísa.
Heimildir og samhengi
Að tillögu Brynjólfs biskups Sveinssonar boðar kóngur að setja skuli á stofn fjögur holdsveikrarhæli.
Að Hallbjarnareyri í Eyrarsveit á Snæfellsnesi kom sá fyrsti ári síðar. Seinna komu, þessir læknislausu ,,spítalar” á Möðrufell í Eyjafirði, Hörgsland á Síðu og Klausturhóla í Grímsnesi:, þó ekki einskorðaðir við þá veiki. Einnig er holdsveikum þá bannað að giftast.
100 ár voru frá því að klaustur voru lögð af, en þar var sjúkum hjúkrað, en á þessum spítölum hlutu líka fleiri vist en holdsveikir enda útrýmdi bólan 1707 því sem næst holdsveiki á 18. öld.
Spítölunum var fenginn fjárhagsgrundvöllur með ,,spítalafiski”. Á ákveðnum dögum einu sinni á ári hverju skyldi afli úr einum róðri falla til spítalanna. Þá gengu og sektir, eða hluti þeirra, til spítalanna, t.d. sektir við helgidagabroti. Víða sagt frá því, að þeir sem reru á helgum degi hafi ótilkvaddir gefið hlut til spítalasjóðs og viljað svo blíðka Guð og menn.
Sr. Hallgrímur Pétursson fær Saurbæ í Hvalfirði 1551 fyrir atbeina Brynjólfs, þegar Saurbæjarprestur mátti víkja eftir að dönsk kona kærði hann fyrir að hafa eitrað fyrir ref með hrossakjöti, sem var bannað árið 999 ásamt hrossakjötsáti. Sjá 1644.
Óttar Guðmundsson í Bakþönkum Fréttablaðsins 04.06.2022: ,,Þegar mikil harðindi gengu yfir landið á fyrri öldum vildu menn fremur svelta en að leggja sér hross til munns. Mönnum var meira að segja bannað að egna fyrir refi með hrossakjöti".
Þorkell Björnsson, Af Jökuldalsmönnum, bls. 89: ,,Fyrr á öldum voru tófur veiddar í gildrur ...lítil hús, byggð úr hellugrjóti ...langt frá bæ. Þegar tófan skreið inn í gildru og nagaði æti, sem þar var fastbundið, féll hella fyrir opið og lokaði tófuna inni.
Einnig var borið út æti, tófan látin ganga að því og síðan legið fyrir henni og skotin.
Þá voru og lagðir út dýrabogar og tókst stundum að veiða vel í þá”.
Í bók Bjarna Harðarsonar, Króníka úr Biskupstungum, bls. 112, er haft eftir Jóni Guðmundssyni (1859-1927), bónda og fræðimanni, Reykjum, Lundareykjadal, að lagt væri að jöfnu að bera út börn og borða hrossaslátur, en þetta tvennt var nefnt í sömu andrá við kristnitökuna 999.
FréttFréttablaðið (opnast í nýjum flipa)
Mikki refur: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)