Prestur blek og penna tók
Lag Blessuð sólin elskar allt
Prestur blek og penna tókpappír réði sóaÍslendinga- er Ara bókafritaði í Flóa.
Heimildir og samhengi
Gunnar Karlsson: Inngangur að miðöldum, 120: ,,Íslendingabók er varðveitt í tveimur pappírshandritum sem 17. aldar maðurinn séra Jón Erlendsson í Villingaholti skrifaði eftir sama frumriti, og eru þau kölluð AM 113 a fol. og AM 114 b fol.
Við lok AM 113 a hefur Jón sjálfur skrifað að því hafi verið lokið árið 1651.
...Stafsetningin á uppskriftum Jóns þykir sýna að hann hafi skrifað þær eftir handriti frá því um 1200, skrifuðu eftir að Ari (fróði Þorgilsson) var búinn að liggja hálfa öld í gröf sinni”.
Séra Jón Erlendsson í Villingaholti réðst í uppskrift þessa og margar aðrar að tilhlutan Brynjólfs biskups Sveinssonar. Þar má og telja hina miklu ættartölubók séra Þórðar Jónssonar (1609-1670) í Hítardal, ,,aðalstofn í flestum síðari ættartölubókum" segir Páll Eggert Ólason í Sögu Íslendinga V, 303.
Drög að skrá yfir handrit, sem sr. Jón Erlendsson hefur afritað og geymd eru á söfnum hér, í Kaupmannahöfn, og Dýflini, og Guðrún Ása Grímsdóttir hefur tekið saman, er birt á sex blaðsíðum, 165 til 170, í Árnesingi VIII, riti Sögufélags Árnesinga árið 2007.
Þar er og á bls. 157 til 164 erindi sem Helgi Ívarsson flutti um ævi og störf sr. Jóns Erlendssonar á fræðslufundi Sögufélags Árnesinga í Þjórsárveri 2006.