Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1718
1718
1718

Forlíkuðust fjendur tveir

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

FForlíkuðust fjendur tveirfýsti Odd að hrellaáður varir annar deyrekki tókst sú brella.

Glúmur Gylfason · 1718

Heimildir og samhengi

Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.

Eftir aldamótin átti vlm. / lm. Páll Vídalín í framastreitu við granna sinn á Þingeyrum, lm. Lárus Gottrup, og naut fulltingis biskups Jóns, frænda síns. En nú fást þeir Vídalínar við lm. Odd Sigurðsson, sem vék Páli frá embætti um tíma 1713.

Jón Aðils: Oddur Sigurðsson, bls. 118n, 127n: ,,Sonur L. Gottrups (fyrrum lögmanns), Jóhann G., og lögsagnari (og aðstoðarmaður föður síns, sýslumanns í Húnavatnssýslu til 1716 og klausturhaldari Þingeyra til dd. 1721), var versti óvinur Odds".
Jón biskup Vídalín skrifar til lm. Páls Vídalín: ,,Ég ætla að Jóhann Gottrup gæti í þessu mikið gert ef hann vildi...en ég vil biðja þig að leggja Gottrup ráð hvernig að því skyldi fara...”.

Þarna eru Vídalínar að leita gagnvitna um framkomu og munnsöfnuð biskups í ,,visitasíunni” á Narfeyri 5. sept. 1713, sem báðir aðilar hafa kært.
Nú neyðast Vídalínar til að brjóta odd af oflæti sínu og vingast við Jóhann Gottrup í þeim tilgangi.
Af nefndu bréfi og öðrum sést að Jón leitaði jafnan ráða hjá Páli um hvað eina í deilunum við Odd - en nú á biskup skammt eftir ólifað.

Altaristafla Þingeyrakirkju og fleiri góðir munir hennar eru frá Lauritz Gottrup komnir.

Myndir

Einnig frá árinu 1718

  • Forlistið stóra þeim varð þarft
  • Sýslumaður og soldát par
← 1718Forlistið stóra þeim varð þarft1718 →Sýslumaður og soldát par