Flestum vel til Vídalíns
Lag Yfir kaldan eyðisand
Lag Ætti eg hörpu
Flestum vel til Vídalínsþótt væri í ræðum óðurog nokkur þætti vinur vínsvar þó biskup góður.
Vídalíns biskups tungutaktilheyrði norrænum andaaldrei vék það aftur á bakundan djöfli og fjanda.
Aurasálirnar vilja' ei varastvítisreyk er í heimum skarastöndin niðri með púkum parastvið pínu eldsloga hvergi sparast.
Heimildir og samhengi
Lést að Biskupsbrekku á Uxahryggjaleið 30. ág. Skálholtsbiskup, Jón Vídalín, f. 21. mars 1666.
Út kom 1720 síðari hluti Postillu Jóns, fyrri hluti kom 1718.
Hélt sína frægustu predikun í Þingvallakirkju 1718. Um drykkju, sjá 1713.
Skaði þótti að Jóni sem dó barnlaus, en kona hans var Sigríður yngri Jónsdóttir (Bauka) og Guðríðar Þórðardóttur fræðimanns og prests í Hítardal Jónssonar. (1717). Kona Þórðar í Hítardal, þ.e., amma Sigríðar biskupsfrúar, var Helga Árnadóttir lm. Oddssonar, biskups. ,,Hún þótti skynsöm kona og vel menntuð og kenndi meðal annars undirstöðuatriði í latínu” segir AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
Um Jón Vídalín ritar Björn Sigfússon í Nordælu 1956, Fornklassísk siðerni og tilvitnanir meistara Jóns, bls. 34:
,,Með víðtækum samanburði mætti rök að því leiða, að þau sérkenni, sem Jón metur dýrust í fornklassísku siðerni, geti ekki talist óháð norrænum fornsagnaanda í undirvitundinni. Mundi eigi vera líkt farið þessu ætterni og ætt tungutaksins í ræðum hans?"
Úr Vídalínspostillu: ,,...en fyrir því að þessir fépúkar ekki taka því svo sem af Drottins hendi komnu, þá kyrkir auraelskan þá jafnvel mitt í dauðanum ...svo fyrirfarast þessir aumingjar ágjarnir ...jafnvel hinn minnsti peningur er hann veit sig með óréttu halda, hann er pantur andskotans upp á hans sálu, sem gefur honum rétt til hennar svo skjótt sem hún skreppur út af kroppnum".