Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1725
1725
1725

,,Á Þingi sofa þeir til nóns,

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í Draumalandi

Efnislega sagði í bréfi J.G. til konungs:

ÁÁ,, Þingi sofa þeir til nóns,þrátta og lygi sverja,Íslandi vinna allt til tjóns,okra, stela, berja.Ef takast ætti af að máOddur rangt hvað gerðiÍsland þyrfti fiscal fámeð fjóra skyttuverði.”

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1725

Heimildir og samhengi

Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.

Jóhann Gottrup tók við lénum Odds Sigurðssonar sem am. Fuhrmann svipti hann 1721.
Þeir Jóhann og Oddur vörðu síðan 12 árum í málaferli og ryskingar.
12/9 ritar J.G. konungi þá lýsingu á æðstu mönnum sem vísan rekur auk drykkjuskapar þeirra, ásannaðra glæpa, ljúgvitna, ærumeiðinga, meinsæris og láti mál liggja sem varði líf og komist í áflog og ryskingar á þingi (það er hann sjálfur).
Nokkuð samhljóða þessu er bréf sem amtmaður ritaði kóngi 22/2 1727.
Að hvergi sé ofmælt sést m.a. í Lögþingsbókinni nr. 6, 7, 18, 19.

Í síðari hluta bréfsins ráðleggur J.G. kóngi að ráða ,,Sérstakan saksóknara”, fiscal, til eftirlits með valdsmönnum.
Fiscalinn fái sér til varnar a.m.k. fjóra skyttuverði með skot-, högg- og lagvopnum.
Að liðnum 5 árum fái hann eitthvert rólegt embætti.
Hann lýsir af nákvæmni nauðsynlegum eiginleikum hins Sérstaka: ,,En allir þessir eiginleikar finnast ekki mér vitanlega sameinaðir hjá neinum af embættismönnum landsins, utan máske einum” (!)

Frá einni öld fyrr er til lýsing hm. Herluf Daa á framkomu íslenskra höfðingja á alþingi: ,,...nokkur hluti sýslumanna og ýmsir aðrir ryðjast inn í lögréttu mjög drukknir og illa til fara með buldri, brusi og snorki, valda þar truflunum á störfum manna og þótt lögmennirnir reki slíka drykkjubolta út, þá gegna þeir því ekki, en víki þeir burtu um stund, þá koma þeir aftur enn þá vitlausari en áður".

(Björn Þorsteinsson, Skírnir 1953; Hítardalsannáll, 602; J. Aðils: Oddur Sigurðsson, 223; Benedikt Gíslason: Fólk og saga, bls. 33, bréf H. Daa.)

Vefursorenvejby.com (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1725

  • Oddur þoldi hróp og háð
← 1725Oddur þoldi hróp og háð1726 →Fyrrum Oddur hátt bar haus