Oddur þoldi hróp og háð
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Lag Enginn þarf að óttast síður
Oddur þoldi hróp og háðhandtekinn á Rifien mamma' h'ans átti alltaf ráðundir hverju rifi.Odds ei lægði ættardrambeymd þótt mætti líðaen grátt að launa Gottrúp lambgæti þurft að bíða.
Í ónáð kóngs er Oddur rataræru sinni og ráði glatarsoninn upp þá Sigríður fatarsynjar hvorki húss né matar.
Heimildir og samhengi
Þjóðsaga er að Oddur hafi dregið korða úr slíðrum á Rifi, en ,,útlendur herforingi” hafi slegið hann úr höndum hans. Sé svo, þá er Magnús Arason (1728) ,,einn sem til greina kemur " (J. Aðils).
Um vopnaburð þeirra Magnúsar og Odds, sjá 1728.
Lýsing á handtökunni á Rifi er höfð eftir sm. Jóni Jónssyni Espólín, Árb. IX, 57, en hann var sonarsonur Jakobs sterka Eiríkssonar sterka á Búðum, Steindórssonar, sem fékk það verkefni að koma Oddi í böndum til móður hans á Rauðamel.
Í sögu Odds segir J. Aðils, bls. 218n m.a: Eftir að Oddur hafði verið dæmdur ærulaus og bótaskyldur sm. Jóhanni Gottrup, fór Gottrup, liðmargur í 3ju viku okt. að Oddi á Rifi og tók hann fastan með hörku og fól Eiríki sterka Steindórssyni á Búðum að koma honum til Sigríðar Hákonardóttur (1726) móður hans á Rauðamel, sem fataði hann upp og fékk séra Jón Jónsson á Breiðabólsstað á Skógaströnd til að koma honum passalausum utan með Stykkishólmskaupmanni. Sigríður hafði tekið sér ófarir Odds nærri og lagði honum nú allt það lið sem mátti þótt hún sæi að hann hefði svívirt ættina og spilað auði og völdum úr hendi sér. Hún skrifaði Fuhrmann bréf og bað um yfirréttarstefnu fyrir hönd sonar síns og bauð jarðir að veði. Þá heimild og passa mátti ekki veita Oddi fyrr en staðfest afrit af lögþingsdómi væri amtmanni í hendi. Í þeim dómi var hins vegar af Oddi dæmd búslóð og æra.
1727 staðfesti hæstiréttur ærusviptinguna og málskostnaður og sektir gerðu hann að ómaga móður sinnar sem enn hljóp undir bagga með farareyri og tókst Oddi með nýjum stiptamtmanni og nýjum kóngi að fá nýjan hæstaréttardóm sér í hag, en Gottrup í óhag 20. júní 1730 eftir að hafa skömmu fyrr hlotið uppreist æru.
Bætur Odds til J. Gottrup 1727 skyldu vera 300 rd.
Næst, 1730, þegar hæstiréttur dæmdi í málum þeirra, skyldi Gottrup gjalda Oddi 300 rd. Sbr. hér að ofan.
Höfðu dómarar lesið Njálu?
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Handtaka:
MyndVísir (opnast í nýjum flipa)