Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1724
1724
1724

Sjaldan var að góðu getið

Hljóðbrot0:00

Lag Enginn þarf að óttast síður

SSjaldan var að góðu getiðGuðrúnar, þá Bæ fékk setiðbændur henni færðu í fletiðflotið, smérið, þorskinn, ketið. .

Að landsetana leigunetiðlyki um klónni - nærri getiðá enn, segir internetiðEggertsdóttir græðgismetið.

Glúmur Gylfason · 1724

Heimildir og samhengi

Lést barnlaus ekkja, Guðrún ríka (f. 1637) í Saurbæ, Rauðasandi, Eggertsdóttir ríka á Skarði, Björnssonar ríka á Bæ, Rs. Magnússonar prúða.
Maður Guðrúnar, sm. Björn (1650-1679), var sonur Vísa-Gísla Magnússonar, sjá 1621.

Guðmundur J. Einarsson frá Brjánslæk: Kalt er við kórbak, bls. 27: ,,Á jörð (Siglunesi), sem ekki hefur heyskap nema fyrir 6 kýr, er hrúgað 11 1/2 kúgildi af leigupeningi, og leiguliðar eru látnir borga 12 ær loðnar og lembdar í fardögum, auk þess hlekkjaðir sem galeiðuþrælar á skipum jarðeigendanna og auk þess skyldaðir að flytja fyrir þá endurgjaldslaust ,,ef með þarf". þannig voru kjör leiguliðanna í byrjun 18. aldar".

Framanritað vinnur höfundur, GJE, upp úr jarðabók Árna Magnússonar og nafngreinir enn fremur leiguliða Guðrúnar Eggertsdóttur á Siglunesi sem hafi orðið að borga leigu eftir hest, sem dó úr heyleysi og megurð, í 15 ár eftir að hann var dauður og borga loks hestinn sjálfan með 6 vættum, þ.e., um 240 fiskar.
Fyrir að róa á bátum Guðrúnar, hirða hlut hennar og verka aflann fengu landsetar hennar hausana og slógið.

Internetið segir sömu sögu:AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Oscar Clausen rekur árið 1937 miklu nákvæmar þrælatök Guðrúnar á landsetum sínum í Aftur í aldir, á bls. 28-40, fer síðan á eigin slóðir og segir: ,,Þannig var það líka hjá flestum auðmönnum í Breiðafirðið fyrr á öldum, að fóturinn undir auðsöfnun þeirra stóð í verstöðvunum, - Daði í Snóksdal og síðar Oddur lögmaður Sigurðsson áttu mesta útgerð undir Snæfellsjökli. Staðarhóls-Páll og síðar Skarðsmenn áttu útgerðina í Bjarneyjum, Flatey og Oddbjarnarskeri. ...á öllum þessum stöðvum sátu ríkismenn yfir hlut kotunganna, héldu þeim þrælatökum og söfnuðu auði mann fram af manni um aldaraðir.
Þetta ritar O. Clausen 1937, danskættaður, þegar, skv. erindi dr. Láru Magnúsardóttur við HÍ 2/12 2014: ,,..var ætlast til að sagnfræðingar og kennarar tækju þátt í sjálfstæðisbaráttunni með því að tala illa um Dani” - en vel um alla Íslendinga og stóð sá rétttrúnaður lítt haggaður til 1987.AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
(1816).

Hér er mynd sem á að sýna hjónin í Saurbæ, Björn Gíslason og Guðrúnu Eggertsdóttur:
Minningartafla eftir séra Hjalta Þorsteinsson í Vatnsfirði“Tímarit.is (opnast í nýjum flipa).
Árbók Hins íslenska fornleifafélags, 78. árg. 1981.

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1724

  • Reykjahlíð nú hraun burt þvær
← 1724Reykjahlíð nú hraun burt þvær1725 →Oddur þoldi hróp og háð