Ekki fleiri fljóðum drekkt
Lag Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858
Ekki fleiri fljóðum drekktfangaverðir lúnirþetta var orðið ómögulegt- allir pokar búnir
Heimildir og samhengi
Af Vísindavefnum:
,,1739 var Guðfinna Þorláksdóttir frá Sæbóli á Ingjaldssandi í Vestur-Ísafjarðarsýslu dæmd til dauða fyrir dulsmál og finnast engin bréf um hana næstu árin, þannig að líklega var henni drekkt á Þingvöllum".
Það gæti verið síðasta drekking þar, en 1754var Guðrúnu Valdadóttur drekkt í Mikladalsá á Patreksfirði sunnanverðum (vestanv.) fyrir sifjaspell; hafði átt börn með feðgum, og mátti hún sauma pokann utan um sig sjáf. Guðrúnu hefur verið reist minnismerki á staðnum. Einar Laxness telur síðustu drekkingu á Þingvöllum vera 1749. Gæti það hafa verið Guðfinna?
Hér má bæta við, að með konungstilskipun skyldi hætt að hengja þjófa 1734, en í stað þess kæmi fangavist og hegningarvinna. Ekkert fangelsi var á Íslandi fyrr en 1771 svo hér var áfram brennimerkt, hengt og hýtt þó líka væru sakamenn fluttir utan til afplánunar. Í harðindunum 1751 til 1758 voru þannig fluttir út til hegningar um 20 þjófar ár hvert og fylltu Rasp-, Spuna- og Stokkhús Kaupmannahafnar. Var þá farið að huga að íslensku fangelsi. (Skv. Íslands sögu E. Laxness, III, 60).