Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1746
1746
1746

Óguðlegt má forðast fas

Hljóðbrot0:00

Lag Sigga litla systir mín

ÓÓguðlegt má forðast fas- fetta sig né bretta -iðka skal ei óþarft masekki spyrja frétta.

Enn samt mega tveir og tveirtala í hljóði samanef að sýna engum þeirað það sé neitt gaman.

Hjúið gegni undir einseinlægt bóndans viljaannars munu annars heimsá því slögin bylja.

Við kirkju hrotta hýða skalhvernig sem að viðrastmá í gapastokk sá stalog strekkja' á þar til iðrast.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1746

Heimildir og samhengi


HÚSAGATILSKIPUNIN:
Píetismi, þ.e., hreintrúarstefna, var í algleymingi í valdatíð Kristjáns VI., 1731 til 1746.
Skyldi þá líferni þegnanna vera flekklaust ella biði þeirra helvíti.
Húsagatilskipunin, útgefin þetta ár, var sett til höfuðs djöflinum, en var leyst af hólmi af hjúalögum árið 1865, en þó leyfðist húsbændum þar enn að beita hjú líkamlegum refsingum fram til 1928. Sjá:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Húsagatilskipunin og framhald hennar, sem m.a bannaði að sýna af sér kæti, gilti til 1928/9 og þykir hörð ræða nú á tímum, en þá og fyrr þóttu líkamlegar refsingar sjálfsagðar og byggðu m.a. á Síraksbók 30.1.
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Ein af tilskipunum Harboes, frá 1743, boðar þó mildari refsingar í skólunum, áður voru piltar hirtir á bert bak, sbr. 1695.
Halldór Laxness: ,,í Brekkukoti voru forvitni og stelvísi lagðar að jöfnu" (bls. 81).

Gunnar Gunnarsson, Fjallkirkjan I, bls. 223, (Tvíbýliskona um Ugga og systkini): ,,Mig tekur það sárt, grannkona, að börnunum ykkar skuli ekki vera betra innræti gefið. Vonandi er ekki um seinan að flengja úr þeim ódælið, sé vel á vendinum haldið og honum beitt af hörku. Annars er voðinn vís."

Guðmundur Daníelsson segir frá þeirri reglu Sigríðar Bárðardóttur (1774 - 1866), húsmóður á Þingskála í Holtum, að hún lét liðlétting mata vefarann, Gróu Jónsdóttu ,,þar sem hún sat og sló vefinn frá morgunskímu til miðnættis". (Dómsdagur, bls. 54).

Gapastokkum var komið upp við kirkjur og þótti engin óhæfa þótt klæðisklæddir yfirstéttarrmenn settu dóna í þá án dóms enda hvatti sr. Þorsteinn Pétursson (1757) til þess í skrifum sínum (sjá 1802).
Einhver misbrestur hefur þó verið á framkvæmdinni af því að sáa sami, séra Þorsteinn Pétursson (sjá 1757) á Staðarbakka kvartaði skriflega 1770 til Landsnefndarinnar fyrri um að gapastokka vantaði.

Í Sölku Völku, bls. 383, lætur Halldór Laxness Arnald Björnsson segja: ,,í raun og veru erum við sú þjóð sem unir sér best í gapastokknum, en hann er aðeins frábrugðinn snörunni í því að dólgurinn tyllir niður tánum".

Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar II, 361, segir frá smalapilti, Þorsteini nokkrum, sem tók til reiðar gæðing húsbónda síns, Jóns Ólafssonar hreppstjóra í Síðumúla - bóndi þar 1777-1809. Ekki vildi hreppstjóri láta þess óhegnt fremur en Hrafnkell Freysgoði: ,,En nú var hægurinn hjá með refsitæki þar í Síðumúla. Í kirkjuþilinu hékk gapastokkur. Með honum var öllum ógnað sem á einhvern hátt brutu á móti almennum siðareglum. Skyldu þeir seku hengjast í hann á messudögum ...meðan messan stóð yfir ...ef þeir voru þá ekki dauðir áður, sem ekki var dæmalaust”.
Úrdráttur: Þegar til átti að taka hafði þó virtur bóndi unnið skemmdir á gapastokknum og var hann ónýtur með öllu og aldrei gerður nothæfur eftir þetta.

Espólín segir árið 1805: ,,Áður settu sýslumenn og stundum hreppstjórar og prestar hvern þann í gapastokk dómlaust, er þess þótti verður".

Þjóðhættir Finns á Kjörseyri segja bls. 41 að síðastur hafi verið settur í gapastokk Jónas nokkur Jónsson, bróðir frægasta sauðaþjófs Íslands, Holtastaða-Jóhanns (sjá 1832) og hafi verið refsing fyrir að gefa mönnum auknefni. Þetta hafi verið á Staðarbakka í MIðfirði og væntanlega fyrir 1837, en það ár voru pyntingar bannaðar.

Í ,,Helgum steini, bls. 221 - 222, nefnir Karl Sigurbjörnsson, biskup, að dæmisagan í Lúkas 12 af þjóninum ótrúa, sem barinn verður mörg högg, geti átt heima í fasbókinni og heitu pottunum. Dómstóll götunnar á 21. öld refsi eins og húsbóndinn í sögunni, ,,ekki vantar höggin og hefndarþorstann og refsigleðina. Maður gæti ímyndað sér að ef almenningsálitið fengi að ráða þá væri gapastokkur á hverju torgi og gálgi á hverjum hól".

Rætur Píetismans voru með þýskum og má rekja þær til hörmunga 30 ára stríðsins sem skildi eftir mörg munaðarlaus börn og örkumla fólk sem píetistar reistu heimili fyrir, Weisenhausen. Eftir drepsótt í Kaupmannahöfn 1711 urðu mörg börn foreldralaus og hófst þá undirbúningur að slíku húsi þar, en komst þó ekki í gagnið fyrr en 1728.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

August Hermann Franke (1663-1727) er hvað mestur áhrifamaður með þýskum hreintrúarmönnum og biskup Erik Pontoppidan (1698-1764) með dönskum - höfundur fermingarkversins ,,Ponta" sem margþýtt var á íslensku.

Þýskættaða drottningin, Sophie Magdalene af Brandenburg-Kulmbach magnaði trúarhitann upp í Kristján kóngi VI., sem sendi danska presta í píetíska endurmenntun til þýskra og þeir einir hlutu biskupsembætti.

Í hreintrúarefnum var ekki um auðugan garð presta að gresja á Íslandi. Þó áttum við sr. Þorstein Pétursson (1710-1785) á Staðarbakka, sem e.t.v. þess vegna varð prófastur, sem prestum gramdist, þar sem hann var af almúgakyni. Sjá og Jón lærða Jónsson1822.
Í svari til Landsnefndarinnar fyrri, 1772, nefnir sr. Þorsteinn Pétursson að gapastokkar þyrftu að vera við allar kirkjur og bendir það til þess að nokkurn tíma hafi tekið að koma þessu verkfæri í gagnið.
Lærdómsmaðurinn af prófastaætt, Finnur Jónsson, var ekki píetisti og varð biskup síðar en við var búist.

Sjá AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)

Sjá og skýringar við 1731.
Fermingar voru innleiddar með konunglegri tilskipun Kristjáns VI. árið 1744, en í Danmörk 1736.
Jóhannes Birkiland lýsir á bls. 65 í ,,Harmsögu ævi minnar" áhrifum fermingar á þjóðfélagsstöðu þannig, að á fermingardaginn hafi presturinn heilsað honum svo: ,,Komdu nú sæll, Jói minn", en að aflokinni fermingu kvatt hann og sagt: ,,Verið þér nú sælir, Jóhannes minn".

Vefurimago-images.de (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1746

  • Halldór betri byrjar naut
← 1746Halldór betri byrjar naut1747 →Prestar mátu prófast slys