Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1747
1747
1747

Prestar mátu prófast slys

Hljóðbrot0:00

Lög: Kálfar 2 í kúam./Þú komst í hlaðið

PPrestar mátu prófast slyspukra ei né leynaað ,,óumventan innvortis”óskuðu sér Steina.

Glúmur Gylfason · 1747

Heimildir og samhengi

Séra Þorsteinn Pétursson (1710-1785) á Staðarbakka verður 1747 að fullu prófastur Húnvetninga, en var áður aðstoðarprófastur fyrir tilstuðlan L. Harboe. Sjá 1757 og 1736.
Sama árið og Jón Thorchilius kærði skólahaldið í Skálholti til danskra yfirvalda, 1734, útskrifaðist séra Þorsteinn Pétursson stúdent úr Skálholtsskóla ,,óumventur innvortis” eins og hann orðar það í ævisögu sinni og gagnrýnir að viðgangist.
Sjálfsævisaga Þorsteins kom út 1947 í umsjón Haraldar Sigurðssonar, bókavarðar.
Þorsteinn vígðist þegar aðstoðarprestur til sr. Orms Bjarnasonar, prófasts á Mel í Miðfirði og aðstoðarprófastur hans við komu L. Harboes, 1741, en Ormur þá gamall orðinn. Frá Harboe fékk ÞP sér veittan Staðarbakka og varð prófastur í 30 ár. Þótti þá prestum í Húnaþingi fram hjá sér gengið er bóndasonur af sléttum almúgaættum varð prófastur. En Þorsteinn var heittrúarmaður (píetisti) eins og þeir félagar, Harboe og Jón Thorchilius.
Þorsteinn tók prófastsembættið alvarlega og samdi umvandandi hirðisbréf til prestanna með postullegu orðalagi þeirra Páls og Péturs, sem prestar undu lítt og rituðu þar um til Halldórs biskups Brynjólfssonar.
Annað umvöndunarefni sem eftir Þorstein liggur er Leikafæla, rit gegn þrettándagleði sem Bjarni Halldórsson hélt á Þingeyrum árin 1755-1757, sjá þar.

Pietisminn - heittrúarstefna - spratt upp af þeirri miklu eymd sem ríkti með þýskum eftir þrjátíuárastríðið, 1618 -1648. Urðu þá mörg börn foreldralaus. Þar og í Danmörk gat stefnan af sér uppeldisheimili fyrir munaðarlaus börn, Waisenhaus, og einmitt þetta ár var prentuð íslensk biblía ytra sem kölluð hefur verið Waisenhausbiblían. Hér má finna samhengi við erfðaskrá Jóns Thorchilius (Þorkelssonar), sjá 1759, 1791, 1848 og spjall í Mbl. við Egil Bjarnason, fornbóksala:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Heimildir m.a: Ísl. æviskrár, Ævisaga Þorsteins Péturssonar og formáli Halldórs Sigurðssonar.

Myndir

Einnig frá árinu 1747

  • Víst í biskups virðugt starf
  • Jón frá Dresa dæmdur slapp
← 1746Óguðlegt má forðast fas1747 →Víst í biskups virðugt starf