Jón frá Dresa dæmdur slapp
Lag Ó, fögur er vor fósturjörð
Jón frá Dresa dæmdur slappog dró sig norður sandasem hvorki færði fé né happen fógetanum vandaBárðdælingar brugðu viðbrátt í einum hvellirunnu á lykt þá suðu sviðsaman þrír í helli.
Heimildir og samhengi
Ketilsstaðaannáll: ,,Fram úr Bárðardal í Þingeyjarþingi eru til fanga teknir 3 útileguþjófar í einum helli, Ívar, Jón og Árni burtstrokinn úr Snæfellssýslu fyrir sakir stórþjófnaðar.
Jón var Erlendsson og var á þinginu þetta ár.
Drese fógeti dæmdur í sekt, 60 lóð silfurs, fyrir vangæslu á honum”.
Hefur Jón sloppið norður. Sviða er ekki getið í annálnum, en þrír voru þjófarnir þarna í hellinum við einhverja iðju.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Saga frá Skagfirðingum segir sögu sem lætur sm. Skúla Magnússon leyfa Árna (Einari) strok úr gæslu á Ökrum og ráðleggur honum um flóttann. Hann hafi farið til Vopnafjarðar og sest þar í búnað, þjóðhagi og skraddari, byrjað nýtt líf og nefnt sig Einar.
Ekki var farið með Skúla eins og Dresa í þessu máli frekar en fyrri daginn. (1792, 1793, 1794).
Saga frá Skagfirðingum I, 76.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Ævar Kvaran: Ísl. örlög, bls. 57 segir þessa sögu með öðrum hætti eftir skráðum þjóðsögum.
Enn eitt afbrigði, nefnist Einar sterki, og er í Þistlum, bls. 97, og þangað komið úr Íslenskum þjóðsögum Sigfúsar Sigfússonar VII.
Guðmundur Daníelsson, Dómsdagur, bls. 199: ,,Ástir í meinum, blóðskömm og sifjaspell nutu alla tíð umburðarlyndis almennings, þjófurin uppskar fjandskap og lítilsvirðingu. Nema hann hæfist upp í að gerst útilegumaður og kæmist á handahlaupum upp á jökul undan þjónum réttvísinnar ...þá varð hann samstundis mikilmenni".