Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1748
1748
1748

Sögu skrýtna segja skal

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

SSögu skrýtna segja skalsú þó engin lygi:ultima cena í Otradalöll í bríaríiklerkur samdi kæruskjalá kollega sinn, Láka,sér vildi í Selárdalséra Jón Teits skáka.

Glúmur Gylfason · 1748

Heimildir og samhengi

Séra Þorlákur (~1711-1773) í Selárdal, Guðmundsson, faðir Jóns þjóðskálds (1744-1819), þjónaði drukkinn við altarisgöngu í Otradal og missti prestinn eftir kæru sem barst frá séra Jóni Teitssyni prófasti, gestgjafa hans þar.
Þorlákur var þarna í árlegri messuheimsókn til ,,bróður" í Otradal, sem ekki var neitt sældarbrauð. Allir vissu að Þorlákur var fyrir sopann. Séra Jón veitti vel kvöldið fyrir og lét hinn útdeila efnunum og fór það í handaskolum. Kærði sr. Þorlák síðan og sótti um kostabrauðið Selárdal, en fékk þó ekki enda augljóst hver brögð voru í tafli. Jón Teitsson varð síðar tengdasonur Finns biskups og þá greið biskupsgatan til Hóla, sjá 1780.
Sjá 1773og frásögn Einars Bogasonar í Frá ystu nesjum V, bls. 144.

Ultima cena: Síðasta kvöldmáltíðin, sbr. nafnið á frægu málverki L. da. Vinci.

Þessi atburðarás í Otradal má leiða hugann að sögu Gísla Súrssonar, en það var einmitt frá Otradal sem Valgarður grái fór mannmargur að Gísla í Geirþjófsfirði og felldi hann eftir fræga vörn á Einhamri.

Otradalur, mynd M. V. Lund: Myndssl.c.photoshelter.com (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiNáttúruminjasafn (opnast í nýjum flipa)

Otradalur, málverk: Skjalskyrslur.minjastofnun.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1747Jón frá Dresa dæmdur slapp1749 →Í heiminn Bólstaðarhlíðar Björn